Fréttasafn

  • Haukar-Valur mfl.karla

    Strákarnir okkar unnu frábæran sigur á Val á Ásvöllum í kvöld 33-28. Haukar skoruðu fyrsta markið, Valur jafnaði 1-1, Haukar áttu næstu tvö mörk 3-1 og héldu forystunni eftir það. Um miðjan fyrri hálfleik tóku þeir völdin og leiddu með sex mörkum í hálfleik. 19-13. Í síðari hálfleik slökuðu okkar menn á og Valur sótti…

  • Birkir Ívar í atvinnumennskuna

    Okkar frábæri markmaður, Birkir Ívar hefur gengið frá 2ja ára samningi við þýska liðið Tus-N-Lübbecke. Bikir Ívar yfirgefur herbúðir Hauka í vor og heldur á vit ævintýranna og mun spila í Bundesligunn næsta vetur. Haukar munu kveðja Birki Ívar með miklum söknuði en jafnframt óskum við honum góðs gengis í atvinnumenskunni. Þetta er frábært tækifæri…

  • Lokaútkall á dómaranámskeið

    Nú er að ljúka skráningu á dómaranámskeið sem hefst á föstudag. Síðasti skráningardagur er í dag miðvikudag 15 feb.-06 Fyrirkomulag Þátttakendur sækja námsefnið hingað á vefinn og fá verkefni send í tölvupósti í þrennu lagi, 17/02, 24/02 og 03/03. Námskeiðinu lýkur síðan með prófi 11/03. Próf Prófið sjálft verður ekki þreytt í gegnum netið, heldur…

  • 3.flokkur karla

    Ágæta foreldri/forráðamaður 14.01.´06 Eins og áður hefur verið kynnt verður farið þann 30. júlí í æfinga- og keppnisferð til Danmerkur og komið heim þann 06. ágúst. Þar verður tekið þátt í Bröndby-cup og er ætlunin að skrá tvö lið til keppni en raðað er eftir styrkleika á mótið og því munum við vera með bæði…

  • Foreldrafundur

    Í kvöld, 14. febrúar verður foreldrafundur fyrir foreldrar drengja í 8. flokk.Fundurinn hefst kl: 20:30 og verður í íþróttahúsinu á Ásvöllum, 2. hæð. Ég vonast til að sjá sem flesta. kv. Óli gsm. 6943073

  • Að loknu Skákþingi Reykjavíkur

    Nú á dögunum lauk Skákþingi Reykjavíkur 2006. Keppendur voru 58 og komu 9 þeirra úr Haukum! Stefán Freyr og Varði áttu báðir mjög gott mót og hlutu 6 vinninga úr skákunum 9, sem er prýðisgóður árangur. Stefán vann m.a. afgerandi sigur á Birni Þorfinnsyni (2337) og gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Jón Viktor Gunnarsson (2421)….

  • Fjáröflun hjá 6 flokk drengja

    Kæru foreldrar drengja í 6.flokki knattspyrnu hjá Haukum Nú er komið að fyrstu fjáröflun til að standa straum af kostnaði við keppnisferðir vegna sumarsins 2006. Þessi fyrsta fjáröflun mun verða sala á sjófrystum roðlausum og beinlausum ýsuflökum. Um er að ræða sjófrystar blokkir sem eru ríflega 9kg og mun blokkin verða seld á 6000 kr….

  • Haukar sigruðu í Njarðvíkurmótinu

    Á sunnudaginn sl. fór fram Njarðvíkurmótið í 6.flokki í Reykjaneshöll. Alls 24 lið tóku þátt með samtals hátt í 200 keppendum. Eftirfarandi félög tóku þátt Grindavík, Haukar, Keflavík, Njarðvík, Víðir / Reynir og Þróttur Vogum sem léku í fjórum deildum. Haukar uinnu mótið þar sem þeir sigruðu í Argentísku deildinni glæsilega en þeir unnu alla…

  • Haukar – FH 0-1

    Meistaraflokkur karla tók á móti nágrönnunum í FH í æfingaleik í Fífunni um sunnudagskvöldið. Leiknir voru þrír 35 mínútna hálfleikar og lauk leiknum með 0-1 sigri FH. Það var ekki ýkja margt sem gladdi augu þeirra þó nokkuð margra áhorfenda sem lögðu leið sína í Fífunan þetta kvöld þar sem hvorugt lið sýndi neina sérstaka…

  • Haukar í Höllina

    Handboltaveislan á Ásvöllum í gær var hreint frábær. Bæði liðin okkar tryggðu sér sæti í úrslitum SS-Bikarsins. Stelpurnar unnu Gróttu 25-22 og strákarnir unnu Fram 30-27. Tveir glæsilegir sigrar og alveg meiri háttar að fara með bæði liðin í Höllina. Takið frá laugardaginn 25. febrúar því þá verður sannkallaður Haukadagur í Höllinni: Haukar – ÍBV…