Fréttasafn

  • Fjórir leikmenn úr Haukum í U16 ára landsliði HSÍ

    Fjórir ungir og efnilegir leikmenn úr röðum yngri flokka Hauka í handbolta voru valdir í 30 manna landsliðshóp U-16 ára sem spilar á móti A-landsliði kvenna helgina 6.-7. desember í Mýrinni, Garðabæ. Strákarnir eru:Andri SchevingEinar Ólafur ValdimarssonJóakim JóhannssonKristinn Pétursson Leikirnir fara fram á föstudaginn kl. 19:00 og laugardag kl. 13:30. Heimasíðan óskar strákunum til hamingju…

  • Haukar áfram í 8 liða úrslit

    Haukar eru komnir áfram í 8 liða úrslit bikarkeppni KKÍ eftir að liðið lagði Snæfellsmenn í gærkvöld, 90-84. Eins og svo oft áður byrjuðu Haukar ekki vel og lentu til að mynda 16 stigum undir í öðrum leikhluta. Menn fundu þó taktinn og minnkuðu muninn jafnt og þétt og ekki munaði nema sex stigum á…

  • Spekingaspjall

    Haukar.is setti sig í samband við nokkra valinkunna menn og fékk þá til að skjóta á tölur fyrir leik Hauka og Snæfells á morgun. Allir þeir sem síðan spjallaði við skutu á sigur Haukamanna en naumt verður það þó í flestum spám.  Leitað var til þriggja fyrr um þjálfara Hauka sem og pjakkanna í Haukar…

  • 16 liða úrslit bikarsins á sunnudaginn

    Haukar mæta Snæfellingum í Powerade bikarkeppni KKÍ á sunnudaginn næstkomandi og leikið er á Ásvöllum. Saga Hauka og Snæfells nær ekki neitt gríðarlega langt aftur og hafa liðin aðeins mæst einu sinni í keppninni eftir því sem við komumst næst. Snæfellingar sigruðu Hauka 69-89 þann 21. nóvember 2007 þegar liðin mættust á Ásvöllum. Haukar voru þá ný…

  • Haukar of seinir í gang

    Haukar mættu Keflavík í áttundu umferð Domino’s deildarinnar í gærkvöld. Haukaliðið var langt frá sínu besta í fyrri hálfleik en sýndu klærnar í þeim seinni. Það dugði þó ekki og sigruðu gestirnir með fimm stigum 63-68. Haukar sá alls ekki til sólar í fyrri hálfleik og voru 14 stigum undir í hálfleik 29-43. Haukur Óskarsson…

  • FH – Haukar í kvöld kl. 20:00

    Toppsætið í húfi í toppslag Olís deildarinnar. Haukar fara í heimsókn í Kaplakrika í kvöld og etja kappi við FHinga. Ekki nóg með að þessar rimmur á milli þessa félaga eru ein besta skemmtun hvers tímabils í handboltanum heldur eru Haukar og FH í toppsætum Olís deildarinnar og má því búast við hörku viðureign í…

  • Haukar – Keflavík

    Keflvíkingar koma í Schenker höllina í kvöld og etja kappi við Haukamenn í áttundu umferð Domino’s deildar karla. Haukar eru sem stendur í 6. sæti deildarinnar með 8 stig, jafn mörg og Þór Þorl. sem situr í 5. sæti, en Keflavík er í 2. sæti og hafa einungis tapað einum leik í deildinni í vetur….

  • Haukar – Valur í kvöld kl. 19:15

    Haukastelpur taka á móti Val í kvöld í Schenkerhöllinni kl. 19:15. Haukastúlkurnar hafa verið að spila mjög vel í síðustu leikjum og hafa unnið síðustu 5 leiki sína nokkuð örugglega og hafa verið að skríða upp töfluna.  Haukar eru í 3 sæti, tveim leikjum á eftir toppliðunum tveim og með sigri geta þær sett pressu…

  • Aftur á toppinn

    Það var stórleikur hjá meistaraflokki karla í handbolta á gær, laugardag, þegar liðið lék gegn Eyjamönnum en fyrir leikinn voru Haukar í öðru sæti með 11 stig á meðan ÍBV var í þriðja með 10 þannig að um toppslag var það ræða. Haukamenn mættu áræðnir til leiks og komust strax í 4 – 1 og…