Davíð er skákmaður Hauka 2006

Skákmaður Hauka 2006 er Fidemeistarinn Davíð Kjartansson ELOstig 2288.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Davíð verið með sterkustu skákmönnum íslands undan
farin ár.
Davíð átti gott skákár sem að náði hápunktinum þegar hann vann áskorendaflokk Ís
landsmótsins í skák. Davíð sýndi mikið öryggi og fékk 8 vinninga af 9 mögulegum.
Davíð vann sér inn rétt til þáttöku í Landsliðsflokki að ári.
Davíð var í liði Skákdeildar Hauka sem lenti í 3. sæti á Íslandsmóti Skákfélaga
síðastliðið vor.
Hann var einnig á 1. borði og leiddi þar með sveit Hauka í fyrstu þáttöku okkar
í Evrópukeppni skákfélaga sem fram fór í Austurríki nú í haust.
Davíð leiddi einnig Skákdeild Hauka til silfurverðlauna í Bikarkeppninni í Atská
k 2006.
FIDE meistarinn Davíð Kjartansson er Skákmaður hauka 2006.