Haukar-ÍBV mfl.ka.
Strákarnir eiga fyrsta heimaleik í deildinni á sunnudaginn kl. 20.00. Taka á móti Eyjapeyjum á Ásvöllum. Allir að mæta.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Strákarnir eiga fyrsta heimaleik í deildinni á sunnudaginn kl. 20.00. Taka á móti Eyjapeyjum á Ásvöllum. Allir að mæta.
Stelpurnar unnu ÍBV 24-19 í leiknum um titilinn meistari meistaranna á Ásvöllum í gærkvöldi. Haukar byrjuðu leikinn mjög illa og komst ÍBV yfir 3-7, en þá settur skvísurnar okkar allt í gang, skoruðu átta mörk og komust yfir 11-7. Eftir það var aldrei spurning hver færi með sigur. Til hamingju með fyrstu dollu vetrarins.
Það sem áður var búið að semja um við Pólverjana um að báðir leikirnir yrðu hér heima dagana 13. og 14. október hefur breyst þannig að fyrri leikurinn verður í Póllandi þann 7. október kl.17.00. Seinni leikurinn verður á Ásvöllum laugardaginn 13. okt. kl. 16.30
Fréttatilkynning frá HSÍ. Dregið var í 32-liða úrslitum í SS-Bikarkeppninni í Handboltakvöldi í gær. Áætlað er að leikirnir fari fram miðvikudagin 10.okt. Eftirtalin lið mætast. Víkingur-b – Stjarnan Peran – ÍR-a Höttur – Grótta/KR-a ÍR-b – FH Ármann/Þróttur – ÍBV-a Selfoss – UMFA Fylkir – Víkingur-a Grótta/KR-b – UBK Þau lið sem sitja yfir eru…
Minnum á leikinn í kvöld kl. 20.00 Haukar-ÍBV um titilinn „Meistari meistaranna“. Allir að mæta.
Haukar hófu titilvörnina með öruggum og sannfærandi sigri 28-21 á Víkingi í Víkinni í gærkvöldi. Ekki er hægt að segja að strákarnir hafi átt góðan leik, töluvert um mistök, en sigurinn var þó aldrei í hættu.
Heimasíðan hefur nú verið tekin niður og mun opna aftur seinnipart sumars, en þangað til mun þetta líta svona út og vonandi mun verða eitthvað af fréttum………. 🙂
Evrópukeppnin Haukar hafa samið við Pólverjana í KS Strzelec-Lider Market og verða báðir leikirnir spilaðir hér heima. Fyrri leikurinn verður laugardaginn 13. okt. kl. 16.30 og seinni leikurinn sunnudaginn 14. okt. kl. 20.00
Óskar Ármannsson hefur verið ráðinn þjálfari 2., 3. og 4.fl.karla. Við bjóðum hann velkominn til starfa og vitum að hann á eftir að gera góða hluti með þessa stráka. (Aldrei að vita nema hann taki líka fram skóna að nýju og spili úrslitaleikinn!!!)
Eins og alþjóð veit þá tóku Haukastrákarnir þátt í Sjallamótinu á Akureyri nú um helgina. Þeir enduðu í öðru sæti á eftir heimamönnum í KA. Leikirnir voru fimm og eru úrslitin svohljóðandi: Haukar – ÍR 16 : 13 Þór – Haukar 14 : 17 Grótta/KR – Haukar 17 : 12 Haukar – Víkingur 21 :…