Firmamót Skákdeildar
Firmamót Skákdeildar verður haldið þriðjudaginn 7. júní. 40 fyrirtæki og stofnanir taka þátt. Teflt verður í Forsalnum og hefst keppnin kl. 19:30.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
fréttir
Firmamót Skákdeildar verður haldið þriðjudaginn 7. júní. 40 fyrirtæki og stofnanir taka þátt. Teflt verður í Forsalnum og hefst keppnin kl. 19:30.
Vorferð öldungaráðs verður farin héðan frá Ásvöllum fimmtudaginn 9. júní kl. 13:30. Ekið veður um Reykjanes og markverðir staðir skoðaðir. Góða ferð !
Haukar mæta Huginn í fimmtu umferð Inkasso deildarinnar á laugardaginn kl. 14:00 og fer leikurinn fram á Ásvöllum. Okkar strákar eru sem stendur í 9. sæti deildarinnar með fjögur stig á meðan Huginn situr í sæti neðar með þrjú stig. Það er um afar mikilvægan leik að ræða og stuðningur Hauka-fólks skiptir miklu máli. Fjölmennum…
EM 2016 hefst í Frakklandi 10. júní nk. Mótið er vafalaust stærsti íþróttaviðburður Íslendinga frá upphafi. Góður árangur Íslands er fyrst og fremst ávöxtur knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi og þeirra fjölmörgu félagsliða sem hafa fóstrað leikmenn landsliðsins. Leikir Íslands verða í opinni dagskrá en Síminn býður áskrift að öllu mótinu – alls 51 leik – á…
Hin og unga og efnilega Sæunn Björnsdóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna, undirritaði í gær samning við Knattspyrnudeild Hauka. Sæunn, sem verður 15 ára síðar á þessu ári, fékk tækifæri með meistaraflokki kvenna á undirbúningstímabilinu, m.a. í Lengjubikar og Faxaflóamóti. Eftir frábæra frammistöðu hefur hún verið í byrjunarliði í öllum leikjum Hauka í 1. deild kvenna og í…
Haukar sigruðu Álftanes 5-0 í 2. umferð 1. deildar kvenna, B riðils, í gærkvöldi á Ásvöllum. Staðan í hálfleik var 2-0. Það var Margrét Ástvaldsdóttir sem skoraði fyrsta markið með glæsilegri aukaspyrnu á 8. mínútu og Alexandra Jóhannsdóttir bætti svo við öðru marki á 37. mínútu. Verðskulduð forysta í hálfleik. Þriðja mark Hauka var sjálfsmark í…
Haukar mæta Víking R. í Borgunarbikar karla á miðvikudag kl. 19:15 og verður leikið á Ásvöllum. Okkar drengir slógu út lið KFR í síðustu umferð, 4-0, en þetta er fyrsta umferð Víking R. þar sem þeir leika í Pepsí deildinni en þar eru þeir í 9. sæti með fimm stig. Haukar eru sem stendur í…
Nú á miðvikudaginn, 25. maí, er síðasta spilakvöld Öldungaráðs í vetur. Þá fer m.a. fram kynning á vorferðinni sem fyrirhuguð er í byrjun júní. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og eiga saman góða stund. Spilakvöldið hefst kl. 18.
Látinn er okkar ágæti félagi, Óskar Halldórsson, 87 ára að aldri, eftir stutt veikindi. Óskar var einn af minnisstæðustu forystumönnum félagsins frá tímum endurreisnar félagsins á 6. og 7. áratug síðustu aldar. Hann var formaður félagsins 1961 -1965, formaður Öldungaráðs 1998 -2004. Vann m.a. að stofnun Knattspyrnudeildar 1961. Heiðursfélagi frá 2006. Félagið sendi eiginkonu og fjölskyldu…
Haukar mæta Fjölni í fyrsta leik sínum í 1. deild kvenna, B-riðli, á miðvikudag og hefst hann kl. 20:00 á Ásvöllum. Stúlkurnar unnu á dögum C deild Lengjubikars kvenna og ætla sér stóra hluti í sumar. Fjölmennum á Ásvelli á miðvikudag og hvetjum okkar stúlkur til sigurs. Áfram Haukar!