Getraunir færa sig um set
Vegna mikilla umsvifa vegna Actavismótsins í körfu á laugardaginn verða Haukagetraunir með starfsemi sína í Engidal.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
fréttir
Vegna mikilla umsvifa vegna Actavismótsins í körfu á laugardaginn verða Haukagetraunir með starfsemi sína í Engidal.
Konný Arna Hákonardóttir og Margrét Björg Ástvalsdóttir hafa skrifað undir samninga við Knattspyrnudeild Hauka. Konný gekk til liðs við Hauka árið 2012 og var um að ræða endurnýjun á samning. Margrét Björg hefur gert félagaskipti í Hauka eftir að hafa verið á lánssamningi frá Fylki síðasta keppnistímabil. Halldór Jón Garðarsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Haukum,…
Matreiðsla í höndum Úlfars og Stefáns á Þremur Frökkum. Rúnar Freyr, Logi Bergmann og Sólmundur Hólm sjá um skemmtiatriði. Happdrætti. Borðapantanir á netfangið magnus@haukar.is eða í síma 665-8910. Verð kr. 7.500.- Nánari fréttir koma síðar.
Íþróttafólk Hauka var kynnt í hádeginu á gamlársdag og afreksfólk og landsliðsfólk Hauka heiðrað. Vel var mætt á í Schenkerhöllina er afreksfólk Hauka var heiðrað, þar sem hver deild tilnefndi íþróttamenn sinna deilda og hápunktur dagsins var er íþróttafólk Hauka var valið og veitti formaður félagsins, Samúel Guðmundsson viðurkenningar. Hægt er að sjá allar tilnefningar…
Á föstudaginn, Þrettándanum, verða jólin kvödd með fjölbreyttri fjölskylduskemmtun hér á Ásvöllum. Á svæðið mæta álfar, púkar og tröll að ógleymdum jólasveininum sem heldur nú til fjalla. Tónlist og söngur af sviði og glæsileg flugeldasýning. Léttar veitingar á vægu verði. Skemmtunin hefst kl. 18 og lýkur með glæsilegri flugeldasýningu kl 19. Góða skemmtun!
Í hádeginu á Gamlársdag verður lýst kjöri besta íþróttafólks og þjálfara ársins hjá Haukum. Einnig fer fram kynning á landsliðsfólki félagsins. Athöfnin hefst kl. 12 í íþróttasalnum. Allir eru velkomnir. Léttar veitingar.
Knattspyrnufélagið Haukar eru með flugeldasölu í samstarfi við Björgunarsveit Hafnarfjarðar að Tjarnarvöllum, við hliðina á Hótel Hafnarfirði. Við hvetjum fólk til að mæta snemma og forðast biðraðir. Opið í dag, föstudag, frá kl. 09:00 – 21:00 og á gamlársdag frá kl. 09:00 – 16:00 Hægt er að sjá vöruúrval á http://www.flugeldar.is/
Kveikt verður í áramótabrennunni kl. 20:30 á Gamlársdag. Brennustæðið er hraunsléttu rétt sunnan við Íþróttamiðstöðina á Ásvöllum. Næg bílastæði eru á svæðinu en fólki er bent á að fara varlega í óupplýstu hrauninu. Gleðilegt ár og góða skemmtun !
Eftirtalin hafa verið tilnefnd til viðurkenninga á hátíðinni á Gamlársdag Besti þjálfari ársins: Eva Ósk Gunnarsdóttir karatedeild Gunnar Magnússon handknattleiksdeild Ívar Ásgrímsson körfuknattleiksdeild Kjartan Stefánsson knattspyrnudeild Íþróttakona ársins Helena Sverrisdóttir körfuknattleiksdeild Guðrún Ásta Arnardóttir almenningsdeild Hjördís Helga Ægisdóttir karatedeild Sara Rakel Hinriksdóttir knattspyrnudeild Maria Innes de Silva Perrera handknattleiksdeild Íþróttamaður ársins Gunnar Ingi…
Knattspyrnufélagið Haukar sendir félögum sínum, stuðningsmönnum og Hafnfirðingum öllum, bestu jóla og nýárskveðjur með þökkum fyrir góðan stuðning á árinu sem er að líða.