Fréttir skák

Fréttir úr skákinni

  • Lok barnaæfinga fyrir jólafrí

    Á morgun þriðjudag kl. 17 verður lokaæfingin fyrir jól og áramót. Eins og venjulega munum við halda jólaskákmót og eiga því allir að mæta kl. 5 og vera til 7. Tefldar eru 6-7 umferðir 7. mínútna skákir og verða veitt verðlaun í 2 flokkum eldri og yngri. Síðan verður eitthvað gómsætt á boðstólum líka.

  • Langþráð úrslit æfinga

    Vegna anna hefur ekki gefist tími til að senda inn eftirfarandi Haukaæfingar fyrr en nú og biðst undirritaður velvirðingar á því. Æfingarnar eru í tímaröð og eru þær síðustu birtar fyrstar. 27. nóv Æfingin endaði með jafntefli Stefán F. og Varða; þeir voru báðir með 10 vinninga af 11 mögulegum. Varði gerði tvö jafntefli en…

  • Æfing 23. okt.

    Alls mættu 14 á æfingunna sem var frekar jöfn og hörð keppni um efri sætinn. En þeir félagarnir Stefán Freyr og Varði enduðu efstir með 11,5 vinninga. Sverrir Þ. og Stefán P. voru svo næstir með 10 vinninga og var formaðurinn sá fimmti í röðinni með 9,5 vinninga. En hérna eru úrslitin í heild sinni….

  • Strandbergsmótið 2007

    Skákmótið Æskan og Ellin fór fram í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju Laugardaginn 27. október. Mótið er haldið í nú í 4 sinn að undirlagi Gunnþórs sóknarprest og taflfélagana Riddaranu, Hróknum, skákdeild Hauka og kátu Biskupunum. Einar S Einarsson var formaður mótsnefndar. Sigurvegari varð hinn ungi og efnilegi Hjörvar Steinn Grétarsson taflfélaginu Helli í Reykjavík en hann…

  • Haukar standa vel að vígi.

    Skádeild Hauka stendur vel að vígi eftir fyrri hluta Íslandsmóts Skákfélaga. A- sveit Hauka er í 2-3 sæti í 1. deild eftir að hafa leitt deildina fyrstu 2 umferðirnar af 4 sem að tefldar voru um síðustu helgi. B- sveitin er í 2. sæti í 2. deild og á góða möguleika á að komast upp…

  • Æfing 18.sept. 2007

    Hvorki fleiri né færri en fjórir skákmenn urðu efstir og jafnir á skákæfingu sem fram fór 18.sept.sl. 1-4. Jón Magnússon Árni Þorvaldsson Stefán Freyr Guðmundsson Þorvarður F. Ólafsson 8,5 v. 5-6. Auðbergur Magnússon Gísli Hrafnkelsson 7 v. 7. Stefán Pétursson 6,5 v. 8. Ragnar Árnason 3,5 v. 9-10. Guðmundur og Ted 3 v. 11. Ingi…

  • Til hamingju Þorvarður!!!

    Þorvarður Fannar Ólafsson kom engum á óvart og sigraði Áskorendaflokk ásamt Jóni Árna Halldórssyni með 7 vinninga af 9 mögulegum. Þeir tryggðu sér þar með þáttökurétt í landsliðsflokki að ári. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Þorvarður vinnur sér þáttökurétt í landsliðsflokki. Þorvarður tefldi mjög vel og örugglega í mótinu og var…

  • 1. æfing vetursins

    Það var heldur léleg mæting á þessa fyrstu æfingu vetursins. En hún fór með sigri Sverris Þ., en hann var með fullt hús. Næstur koma Ingi með 13 vinninga og Jón var með 12. Hérna koma öll úrslitin: 1. Sverrir Þ. með 18 v. af 18 v. 2. Ingi með 13 v. 3. Jón með…

  • Skákæfinga að hefjast.

    Skákæfingar hjá Skákdeild Hauka hefjast þriðjudaginn 4/9. Í vetur verða skákæfingar barna í 2 flokkum. 6-9 ára eru frá kl. 17.00 til 18.00 alla þriðjudaga. 10 ára og eldri verða frá kl. 18.00-19.00 alla þriðjudaga. Teflt er á Ásvöllum. Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur. Nánari upplýsingar veitir Páll í síma 861-9656. Eða pall_sigurdsson@hotmail.com Skákæfingar fullorðinna hefjast…