Firmakeppni Skákdeildar Hauka.
Firmakeppni Hauka. Firmakeppni Skákdeildar Hauka fer fram þriðjudaginn 24,5 kl. 1930. Tefldar verða 9 umferðir monrad (fer eftir þáttöku). Verðlaun verða 1. sæti 5.000, 2. sæti 3.000 og 3. sæti 2.000 Allir velkomnir.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr skákinni
Firmakeppni Hauka. Firmakeppni Skákdeildar Hauka fer fram þriðjudaginn 24,5 kl. 1930. Tefldar verða 9 umferðir monrad (fer eftir þáttöku). Verðlaun verða 1. sæti 5.000, 2. sæti 3.000 og 3. sæti 2.000 Allir velkomnir.
Heimir Ásgeirsson hefur verið gjörsamlega óstöðvandi í vetur og er ekkert lát á. Hann sigraði æfinguna örugglega með 14 vinningum af 16 mögulegum. Páll og Jón börðust svo um 2 sætið og hafði Páll betur að lokum. Röðin varð annars eftirfarandi: 1. Heimir Ásgeirsson 14 v. 2. Páll Sigurðsson 11,5 v. 3. Jón Magnússon 11…
Heimir sýndi fádæma yfirburði þegar hann vann æfinguna í gærkveldi með fullu húsi! Jón Magnússon sigldi lygnan sjó í öðru sæti, en þeir félagar Svenni, Ingi, og Snorri háðu harða keppni um það þriðja. Einnig er vert að minnast á góða frammistöðu Geirs Guðbrandssonar, eins ungu strákanna okkar, en hann hlaut rúmlega þriðjung mögulegra vinninga….
Árshátíð/Lokahóf Skákdeildar Hauka (eldri flokkur) verður haldið á Ásvöllum föstudaginn 13. maí kl. 20. Allir velunnarar Skákdeildar Hauka eru velkomnir. Verðinu er stillt í hóf, eða 1.000 krónur, og eru léttar veitingar innifaldar í því. Síðan verður teflt fram eftir nóttu. Áhugasamir mega hafa samband við Auðberg í netfangið aui@simnet.is eða bara mæta. Muna að…
Skákdeild Hauka vann öruggan sigur á Taflfélagi Garðabæjar í viðureign félaganna sem fram fór í gærkvöldi í Garðabæ en lokatölur urðu 50,5-21,5. Ágúst Sindri Karlsson og Davíð Kjartansson voru bestir okkar manna, en Hilmar Viggósson stóð sig best í heimavarnarliðinu. Árangur Haukamanna: Ágúst Sindri Karlsson 11 af 12. Davíð Kjartansson 9 af 9. Björn Freyr…
Hans Adolf Linnet sigraði á æfingunni með 6 vinninga af 7 mögulegum í 3 mínútna móti. Geir Guðbrandsson varð annar með jafnmarga vinninga en lægri á stigum. Þriðja varð svo Agnes Linnet með 5 vinninga. annars varð röðin eftirfarandi. 4. Jón Guðnason 3 v. 5. Arnór Ingi Björnsson 3. v. 6-7. Árni Freyr Magnússon 2…
Sverrir Þorgeirsson stóð sig frábærlega þegar hann sigraði í elsta flokki Skákævintýris í eyjum nú síðustu helgi. Sverrir fékk samtals 7,5 vinning af 9 mögulegum og varð einn efstur. 5 aðrir Haukamenn tóku þátt í mótinu og stóðu þeir sig misjafnlega en þó mjög vel í liðakeppninni þar sem lið Haukamanna lentu í 4 sæti…
Heimir Ásgeirsson vann yfirburðasigur á síðustu þriðjudagsæfingu. Heimir hlaut 17 vinninga af 18 mögulegum og tapaði ekki skák. Í öðru sæti, heilum 3 vinningum á eftir, varð ánægðasti maður kvöldsins Þorvarður Fannar, en hann var mættur í Haukahúsið klukkan hálf sjö til að fylgjast með hetjunum sínu spila gegn Chelsea í meistaradeildinni. Sverrir Þorgeirsson hafnaði…
Sveinn Arnarsson(1615), sem hefur verið á mála hjá Kátu Biskupunum síðastliðið ár, hefur gengið frá félagaskiptum til Hauka. Sveinn hefur tekið þátt í uppbyggingarstarfi Kátu Biskupanna sem forseti félagsins og ýtt félaginu úr höfn með farsællegum hætti. Ljóst er að Haukamenn koma gríðarsterkir til leiks næstkomandi vetur og Sveinn styrkir D eða E sveitina til…
Alls mun 6 skákmenn úr Haukum fara á skákhátíð í Vestmannaeyjum http://skakmot.eyjar.is en yfir 110 manns munu taka þátt í mótinu í ár. Þetta eru eftirfarandi: Sverrir Þorgeirsson Kristján Ari Sigurðsson Geir Guðbrandsson Herbert Ingi Sigfússon Arnór Ingi Björnsson Jón Hákon Richter Fararstjórar eru þeir Páll Sigurðsson og Arnar Jónsson.