Haukar mæta Fram í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn

Haukar unnu í gær sætan sigur á ÍR í fjórða leik liðanna í undanúrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla. Með sigrinum í gær tryggðu Haukar sig inn í úrslit, því þrjá sigra þurfti til að komast áfram. Leikurinn í gær var jafn til að byrja með en eftir um tíu mínútna leik fékk Sturla Ásgeirsson […]

Rútuferðir upp í Breiðholt á morgun

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Haukar og ÍR eigast við í fjórða sinn í undanúrsitaeinvígi sínu á morgun kl.17.00 í Austurbergi, um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta. Haukar ætla að sjálfsögðu að fjölmenna á leikinn og verða rútuferðir frá Ásvöllum upp í Austurberg fyrir leik og til baka eftir leik. Stemmningin hefst kl.15:00 […]

Frábær sigur í gær, næsta stríð á sunnudag

Haukar unnu heldur betur sætan og mikilvægan sigur á ÍR-ingum í þriðja leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í gærkvöld. Lokatölur urðu 25-24 í rafmögnuðum spennu leik. Okkar menn voru sterkari framan af og leiddu með 1-2 mörkum lengst af fyrri hálfleik en í hálfleik var jafnt 12-12. Gestirnir úr Breiðholtinu byrjuðu […]

Stórleikur í Schenkerhöllinni annað kvöld!

Nú er stutt milli leikja í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta og er næsti leikur strax á morgun klukkan 20.00 ( ath. breyttur tími). Það gefst því skammur sigur til að fagna sigri gærdagsins gegn ÍR. Strákarnir farnir að gera klárt og æfing og videófundur í kvöld. Stuðningsmenn farnir að kaupa hálstöflur og Niveakrem í […]

Staðan í einvíginu við ÍR orðin 1-1

Frábær leikur í gærkvöldi hjá strákunum okkar og staðan í einvíginu orðin 1-1.  Haustbragur var á liðinu í jákvæðri merkingu þessa orðs enda höfðu menn á orði í pöllunum að þarna væru strákarnir mættir aftur sem voru ósigraðir í haust. Frábær sóknarleikur, vel útfærð hraðaupphlaup og síðan vörn sem stóðst flest áhlaup. Jákvæðni og baráttuvilji […]

Leikur númer tvö í kvöld!

Handboltastrákarnir spila leik númer tvö  í kvöld við ÍR. Síðasti leikur var sannkallaður háspennuleikur þar sem úrslitin ræðust ekki fyrr en í síðasti skoti á síðustu sekúndu. Því miður fyrir okkur féll þetta ÍR megin þá. Nú er leikur tvö í kvöld og strákarnir eru staðráðnir í að vinna leikinn og koma einvíginu í 1-1. […]

Glæsilegur árangur hjá 5.flokki kvenna í handbolta

Stelpurnar á yngra ári í  5.fl. Hauka í handbolta áttu góða ferð til Akureyrar síðast liðna helgi. Þær urðu deildarmeistarar A liða og fengu silfur á Íslandsmeistaramótinu. Smellið á lesa meir til að sjá stóra og glæsilega mynd af þessum efnilegu handboltadömum!  

Kolbrún Gígja í Hauka

Kolbrún Gígja Einarsdóttir hefur samið við handkanattleiksdeild Hauka til 2015.  Kolbrún kemur til Hauka frá uppeldisfélagin sínu KA.  Kolbrún á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum þar sem hún hefur leyst stöðu hægra horns og skyttu.  Koma Kolbrúnar til Hauka er  liður í aðgerðum til að styrkja liðið fyrir komandi keppnistímabil.  Haukar telfdu fram […]

Ekki nema rúmur sólarhringur í stórslaginn við ÍR

Nú er ekki nema rúmur sólahringur í að baráttan hefjist fyrir alvöru hjá meistaraflokks strákunum í handbolta og er síðasta æfing og videofundur í kvöld. Samkvæmt upplýsingum heimasíðunnar eru allir klárir í slaginn og enginn forföll í hópnum. Slógum við á þráðinn til Harðar Davíðs liðstjóra sem er ekki að fara í sína fyrstu úrslitakeppni enda að klára […]

Fyrirliðinn bjartsýnn

Eftir tvo daga hefst úrslitakeppni mfl. karla í handbolta með stórleik við bikarmeistara ÍR. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaleikina um Íslandsmeistaratitilinn þannig að leikirnir geta orðið í mesta lagi fimm talsins í rimmunni við ÍR. Eins og menn muna urðum Haukar deildarmeistarar í fyrra, líkt og í ár, en féllu þá […]