Um næstu helgi fer fram bikarhátíð í handboltanum. Hátíðin hefst á undanúrslitaleikjunum sem nú verða leiknir á sitthvorum deginum. Stelpurnar spila á fimmtudeginum 27. febrúar og strákarnir á föstudeginum 28. Úrslitaleikirnar verða svo leiknir á laugardeginum 1. mars.Haukar eru eina félagið sem á fulltrúa bæði karla og kvenna megin sem er frábær árangur. Stelpurnar spila […]
Í gær tóku stelpurnar í handboltanum á móti Gróttu í Olísdeildinni. Þetta reyndist vera enn einn háspennuleikurinn hjá stelpunum. Fyrri hálfleikurinn var tíðindalítill, Haukastúlkur undir frá fyrstu mínútu og munurinn varð mest fjögur mörk en staðan í hálfleik var 15 – 17. Þegar fimm mínútur voru liðnar af seinni hálfleik jöfnuðu Haukarnir og voru síðan […]
Á morgun, sunnudag, tekur eldra ár 4. flokks karla á móti galvöskum Eyjapeyjum í Schenkerhöllinni í undanúrslitum Coca Cola bikarsins. Leikurinn hefst kl. 14:00 og hvetjum við Haukafólk til að mæta og styðja strákana. Haukaliðið lagði Val og Stjörnuna í fyrri umferðum bikarkeppninnar en liðið er sem stendur í 8. sæti deildarinnar á meðan að Eyjaliðið er fjórum […]
Stórleikur verður í Schenkerhöllinni að Ásvöllum á morgun, laugardag kl 16:00, þegar meistaraflokkur kvenna í handknattleik tekur á móti Gróttu í Olísdeildinni. Stelpurnar okkar hafa verið á mikilli siglingu eftir áramót og unnið 7 síðustu viðureignir og sitja nú í sjötta sæti deildarinnar. Grótta, sem er í 3.-5. sæti, hefur verið að ganga ágætlega og […]
Í gær heimsóttu strákarnir í Haukaliðinu Fram í Safamýrina. Leikurinn náði aldrei flugi og minnti um margt á leikinn í Framhúsinu í október. Lítið skorað og frekar ráðlaus sóknarleikur hjá báðum liðum en þó töluvert betri hjá heimaliðinu enda ekki oft sem maður sér Hauka bara vera búna að skora 13 mörk eftir rúmlega 40 […]
Þriðja umferðin í Olísdeildinni fer af stað í kvöld. Haukastrákarnir munu etja kappi við Fram í Safamýrinni og hefst leikurinn kl. 19:30. Liðin spiluðu seinast í Schenkerhöllinni 5. desember og þá unnu Haukar 20 – 17 en Fram vann í Safamýrinni 18. október 18 – 17. Eins og sést þá var lítið skorað í báðum […]
Í kvöld fengu Haukastúlkur tvö stig í hús eftir algjörlega ótrúlegan leik við botnlið Aftureldingar. Við áhorfendur hölluðum okkur aftur í makindum þegar 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og Haukastúlkur leiddu með 11 mörkum. En þá gerðist það sem gerir handboltann frábæra íþrótt til að fylgjast með og sönnun þess að leikur er […]
Á morgun, þriðjudag kl. 19:30, eiga stelpurnar okkar útileik í Olísdeildinni og eru mótherjar þeirrra lið Aftureldingar. Með sigri ná Haukar að vinna 7. leik sinn í röð sem er frábær árangur. Staða liðanna í deildinni er mjög ólík en eftir 17. leiki eru Haukar í 6. sæti með 17 stig. Hafa unnið 8 leiki, […]
Enn eru Haukastúlkur á sigurbraut og í gær lönduðu þær öruggum 17 marka sigri á liði Selfoss 38 – 21. Sigurinn var aldrei í hættu og fóru þær inn í hálfleikinn með 6 marka forystu, 19 – 13. Allir útileikmenn Hauka komust á blað en þær Ragnheiður Sveinsdóttir og Karen Helga Díönudóttir voru markahæstar með […]