Oddaleikur á fimmtudaginn – ALLIR AÐ MÆTA!

Haukapiltar léku í kvöld sinn fjórða leik gegn ÍBV á 9 dögum og leikið var í Eyjum. Leikurinn bar þess merki að mikið væri undir en Haukar gátu með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en ÍBV varð að sigra til að einvígið færi í oddaleik á Ásvöllum. Lítið var skorað framan af leik og jafnræði var […]

Upplýsingar um ferðatilhögun til Eyja

Hér eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga varðandi ferðina til Eyja í dag: Rútan fer frá Ásvöllum kl. 16:00 en ekki 16:15 eins og áður var auglýst.Skráning í rútu hjá Disu á innkaup@haukar.is  og síma 525 8700 og hægt að kaupa hjá henni. Rúta báðar leiðir aðeins kr. 2.500. Herjólfur fer frá Landeyjarhöfn […]

Giedrius með stórleik í góðum sigri Hauka gegn ÍBV – næsti leikur í dag og með sigri getum við tryggt okkur Íslandsmeistaratitilinn

Rimman um Íslandsmeistaratitilinn hélt áfram í Schenkerhöllinni að Ásvöllum á laugardaginn. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og eftir 16 mínútna leik var staðan 7 – 7 og allt í járnum. Þá kom flottur kafli hjá Haukapiltum þar sem þeir skoruðu 7 mörk gegn 3 og hálfleikstölur voru 14 – 10. Síðari hálfleikur byrjaði með […]

Sólveig Björk framlengir við Hauka

Markvörður kvennaliðs Hauka, Sólveig Björk Ásmundardóttir, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2016. Sólveig kom til Hauka frá Stjörnunni um mitt ár 2011 og hefur notið  sín vel hjá Haukum. Rétt eins og Haukaliðið allt hefur Sólveig verið vaxandi leikmaður síðustu árin og eru miklar væntingar gerðar til hennar á komandi keppnistímabili. Áfram […]

Ferð til Eyja á IV. leik – Haukar geta tryggt sér titilinn

Á morgun, þriðjudag, fara Haukar til Eyja og geta með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Strákarnir þurfa stuðning og því hvetjum við Haukafólk til að gera sér ferð til Eyja og upplifa ótrúlega stemningu og jafnframt að hvetja strákana okkar til sigurs. Hópferð verður farinn frá Ásvöllum og fara rúturnar af stað frá Ásvöllum kl. 16:00 […]

Leikur 2 í Eyjum í dag – hópferð frá Ásvöllum

Í dag, fimmtudag, heldur úrslitaeinvígi Hauka og ÍBV áfram um hvort liðið muni hampa Íslandsmeistaratitlinum. Staðan er 1 – 0 fyrir Hauka og mjög mikilvægt að halda áfram á þessari braut og landa sigri á erfiðum útivelli í Eyjum. Mikilvægt er að strákarnir finni fyrir stuðningi á pöllunum og því verður boðið upp á hópferð […]

Haukar komnir 1 – 0 yfir eftir mikinn baráttusigur á Ásvöllum

Úrslitaeinvígið á milli Hauka og ÍBV hófst í kvöld í Schenkerhöllinni. Þarna mættust tvö bestu lið landsins í dag og því mátti alveg búast við hörkuleik sem varð raunin. Haukar byrjuðu betur og komust í 4 – 1 og eftir 24. mínútna leik var staðan orðin 12 – 8 en Eyjamenn neituðu að hleypa Haukum […]

Fyrsti leikurinn við ÍBV um gullið er í kvöld kl. 19:45

Úrslitkeppnin í Olísdeild karla heldur áfram í dag og eins og allir vita þá eru Haukapiltar að fara að leika við ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari og Haukar, sem deildarmeistarar, eiga heimaleikjaréttinn. Fyrsti leikurinn er í Schenkerhöllinni í kvöld, mánudaginn 5. maí, og hefst hann kl. 19:45.Þessi lið hafa […]