Fyrsti heimaleikur strákanna í handboltanum er á morgun

Okkar menn mættu Fram í fyrsta leik mótsins sl. fimmtudag og náðu ekki að sína sitt besta og niðurstaðan varð eins marks tap, 22 – 21. Það er ljóst að deildin verður jöfn í vetur og mikilvægt að við verðum dugleg að styðja okkar lið, bæði stelpurnar og strákana, því það getur skipt sköpum í […]

Haukastelpur frábærar í fyrsta leik

Í gær léku Haukastelpur sinn fyrsta leik í Olísdeildinni í vetur þegar þær mættu FH í Kaplakrika. Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik en sú varð ekki raunin. Okkar konur mættu ákveðnar til leiks og voru kraftmiklar og hreyfanlegar í vörninni og áræðnar í sókninni. Þær sýndu strax klærnar og uppskáru 10 marka […]

Stelpurnar hefja leik í kvöld gegn FH

Karen Helga er fyrirliði mfl. kvenna og þær hefja leik í kvöld í Krikanum gegn FH og hefst leikurinn kl. 20:00. Góðar fréttir bárust í dag en Madalina Puscas markvörður er komin með leikheimild. Heimasíðan setti sig í samband við Karen og fékk hana til að svara nokkrum spurningum:Olísdeild kvenna hefst á morgun og er […]

Olísdeild karla hefst í kvöld

Nú er handboltinn að byrja að fullum krafti og teflum við fram spennandi liðum í báðum Olísdeildunum. Strákarnir hefja leik í Framhúsinu í kvöld kl. 19:30.Heimasíðan setti sig í samband við Matthías Árna fyrirliða mfl. karla og spurði hann nokkra spurninga. Til hamingju með góða frammistöðu á erfiðum útivelli í Rússlandi en þið eruð væntanlega […]

Haukar leika gegn Dinamo Astrakhan ytra á morgun

Okkar menn í handboltanum eru mættir til borgarinnar Astrakhan í Rússlandi og munu leika gegn heimamönnum á morgun kl. 18:00 að staðartíma (14:00 ísl.). Ferðalagið var langt og strangt en miðað við fréttir af þeim á Twitter (@Haukarhandbolti) þá virðist allt vera í góðu lagi og æfðu þeir í keppnishöllinni í morgun. Í spjalli við […]

Rússneski björninn reyndist erfiður

Haukastrákar í handboltanum léku í gær gegn rússneska liðinu Dinamo Astrakhan í Evrópukeppni bikarhafa. Þetta var fyrri leikur liðanna en sá síðari verður næstkomandi sunnudag, 14. sept., í Rússlandi. Leikurinn í gær var að mörgu leyti vel spilaður en þó gerðu Haukapiltar fleiri mistök en andstæðingurinn sem reyndist dýrkeypt þegar upp var staðið. Við höfum […]

Bráttuleikur á Ásvöllum í dag kl 17:00

Í dag mæta Haukar mæta rússneska stórliðinu Dinamo Astrakhan í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa í handbolta. Leikurin hefst kl 17:00. Síðari leikurinn fer fram ytra viku síðar eða sunnudaginn 14. september kl. 18:00 að staðartíma (+4). Þetta rússneska lið kemur alla leið austan frá Kaspíarhafi frá borginni Astrakhan. Liðið varð bikarmeistari í fyrra en lenti […]

Haukar eru meistarar meistaranna 2014

Strákarnir í mfl. karla líta vel út fyrir komandi keppnistímabil í Olísdeildinni. Um síðustu helgi sigruðu þeir á sterku Hafnarfjarðarmóti og í kvöld unnu þeir Íslandsmeistara ÍBV í árlegum leik meistara meistaranna en leikið var í Eyjum. Um hörkuleik var að ræða en að loknum fyrri hálfleik var staðan 15 – 12 Eyjamönnum í vil. […]

Hafnarfjarðarmótið í handbolta hefst í kvöld

Nú er stutt í að handboltavertíðin fari að byrja og eins og fyrri ár þá halda Haukar og FH Hafnarfjarðarmót í handbolta. Mótið hefst í kvöld, fimmtudag, og stendur fram á laugardag. Allir leikir fara fram í Strandgötunni. Gestaliðin í ár verða ÍBV og Akureyri. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að […]