Haukar halda í Garðabæinn

Eftir vonbrigðin um helgina þar sem strákarnir í meistaraflokki í handbolta duttu út úr EHF-bikarnum þrátt fyrir flotta frammistöðu þá er komið að því að færa þá frammistöðu yfir í Olísdeildina. Það tækifæri fá þeir á morgun, fimmtudag, þegar að þeir mæta Stjörnunni á útivelli en leikið er í TM-höllinni við FG og hefst leikurinn […]

Hafnarfjarðarslagur hjá strákunum í handboltanum

Eftir flottan leik í EHF-bikarnum um síðastu helgi er komið að næsta verkefni strákanna í meistaraflokki karla í handbolta en á morgun, miðvikudag, fá þeir verðugt verkefni þegar að nágrannar okkar í FH koma í heimsókn í DB-Schenkerhöllina kl. 19:30 og er því um Hafnarfjarðarslag að ræða í 7. umferð Olís deildar karla. Fyrir leikinn […]

Eitt sterkasta lið Svíþjóðar í heimsókn

Það verður sannkallaður stórleikur hjá  meistarflokki karla í EHF-bikarnum á morgun, laugardag, þegar sænska liðið Alingsås HK kemur í heimsókn í DB-Schenkerhöllina á Ásvöllum kl. 16:00. Strákarnir tryggðu sér þátttökurétt í 2. umferð með því að vinna gríska liðið A.C. Diomidis Argous í 1. umferð nokkuð örugglega 61 – 46 samtals í tveimur leikjum. En […]

Haukar halda norður

Á morgun, miðvikudag, fær meistaraflokkur karla í handbolta annað taækifæri til þess að byrja þetta tímabil, en þá mæta þeir Akureyri fyrir norðan kl. 19:00 í 6. umferð Olísdeildar karla. Fyrir leikinn eru bæði lið með 2 stig í 9. og 10. sæti deildarinnar en bæði lið hafa unnið Selfoss og tapað 4 leikjum. Það […]

Fjórar frá Haukum valdar til æfinga hjá U-landsliðum kvenna

Þær Emilía Ósk Steinarsdóttir og Svava Sigurveig Jóhönnudóttir hafa verið valdar til æfinga hjá U-15 ára landsliði kvenna. Við eigum einnig tvo fulltrúa í U-19 ára landsliði kvenna en þær Alexandra Líf Arnardóttir og Berta Rut Harðardóttir munu æfa með U-19 núna í október. Við óskum þessum efnilegu stelpum innilega til hamingju með þennan árangur! […]

Adam Haukur framlengir samning sinn við Hauka

Adam Haukur Baumruk hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Adam Haukur er uppalinn hjá félaginu og hefur hann spilað með yngri landsliðum Íslands. Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall hefur hann unnið marga titla með félaginu og síðustu tvö ár hefur hann verið einn af lykilmönnum liðsins.

Haukastelpur halda á Seltjarnarnes

Það er sannkallaður stórslagur á morgun, laugardag, hjá meistaraflokki kvenna í handbolta en þá halda þær á Seltjarnarnes í Hertz höllina og etja kappi við Gróttu í Olísdeidinni kl. 14:00. Fyrir leikinn eru Haukastelpur með 4 stig úr 3 leikjum en þær hafa sigrað Stjörnuna og Fylki en þær töpuðu gegn Fram í síðasta leik. […]

Framarar koma í heimsókn

Á morgun, fimmtudag, er komið að næsta leik hjá meistaraflokki karla í handbolta í Olísdeildinni þegar ungt lið Fram kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30 en leikurinn er í 5. umferð deildarinnar. Haukamenn hafa ekki byrjað tímabilið eins og vænst hefur en aðeins einn sigur hefur náðst úr þeim fjórum leikjum sem búnir eru […]