Haukar í 16 liða úrslit í Evrópubikarnum.

Strákarnir tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins um helgina. Haukastrákarnir sigruðu liðið KUR frá Azerbaijan í tveimur leikjum. Fyrri leikur liðanna endaði 30-25 og sá síðari 27-38. Samanlagt sigruðu Haukar einvígið 68-52. Glæsilegur árangur hjá þeim! Dregið verður í næstu umferð á föstudaginn 6. desember. Næsta umferð í Evrópubikarnum fer fram í febrúar. […]

Haukar í 16 liða úrslit í Evrópubikarnum.

Stelpurnar tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins um helgina. Haukastelpur sigruðu liðið HC Dalmatinka Ploče í tveimur leikjum með eins marks mun. Fyrri leikur liðanna endaði 24-23 og sá síðari 17-16. Samanlagt sigruðu Haukar einvígið 41-39. Glæsilegur árangur hjá þeim! Dregið verður í næstu umferð á morgun, þriðjudaginn 19. nóvember, klukkan 10:00. Næsta […]

Evrópuleikur á Ásvöllum á sunnudaginn

HAUKAR ~ HC COCKS 18:00 Miðasala í Stubb og sjoppu á leikdegi ~ 2500 kr fullorðnir ~ Frítt fyrir Hauka í Horni í boði DB Schenker í Stubb appi https://stubb.is/events/ykxZvo  MÆTUM Á ÁSVELLI OG STYÐJUM OKKAR LIÐ TIL SIGURS

Haukar í horni – handbolti

Við viljum vekja athygli á því að Haukar í horni – handbolti þurfa að vera með Stubbur appið í farsíma sínum og virkja miða í hvert skipti sem farið er á heimaleik á Hauka í horni aðganginum. Sýna við innganginn þegar aðgöngumiðinn er virkjaður. Sjá leiðbeiningar hér að neðan hvernig kortið er virkjað. Einnig þarf […]

U18 og U20 landsliðsfólk

Nú hefur U18 og U20 landsliðsfólkið okkar lokið sínum verkefnum í sumar og voru þau landi og þjóð til sóma. Gunni og Camilla á Vellir Sportbar eru meðal styrktaraðila þeirra, meðfylgjandi mynd náðist við afhendingu styrkjanna. Við þökkum þeim kærlega fyrir að stuðninginn.   HM í Kína kvk U18 Þóra Hrafnkellsdóttir HM í Norður-Makedóníu kvk […]

Vetrarstarfið að fara að hefjast

Nú er allt að fara á fullt í vetrarstarfi Knattspyrnufélagsins Hauka. Æfingar hefjast hjá handknattleiksdeild, knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild mánudaginn 26. ágúst. Æfingar hefjast hjá karatedeildinni og skákdeildinni 2. og 3. september. Hægt er að nálgast upplýsingar um æfingartöflu viðkomandi deilda með því að smella hér. Skráning æfingargjalda fer fram í gegnum Sportabler og er það […]

Hafnarfjarðarmótið 2024

Þá er komið að Hafnarfjarðarmótinu 2024 Hið geysi vinsæla Hafnarfjarðarmót fór af stað í gær (þriðjudag 20.ágúst) en þá  fóru fram fyrstu leikirnir. Frítt er inn á alla leikina og hvetjum við handboltaþyrsta stuðningsmenn að mæta og styðja sitt lið. Liðin sem taka þátt i ár eru Haukar, FH, Stjarnan og ÍBV Áfram Haukar

Styttist í að handboltinn fari af stað

Handboltatímabilið fer að byrja aftur! Nú er handboltatímabilið rétt handan við hornið og eru stelpurnar að taka þátt í sterku æfingamóti í Svíþjóð þessa dagana. Hægt er að fylgjast með leikjunum gegn gjaldi hér, https://handbollplay.se/annlizcup/ Strákarnir taka svo þátt í Hafnarfjarðarmótinu sem hefst 20. ágúst og verður leikið að Ásvöllum þetta árið. Þá munu bæði kvenna- […]

Haukamótið í golfi

Haukamótið í golfi verður haldið á golfvelli  Keilis á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 20. september 2024. Nánari tilkynningar um fyrirkomulag og hvenær skráning hefst verður send út síðar.   Áfram Haukar, Undirbúningsnefnd.

Haukastrákar á EM

U-20 ára landslið karla var einnig á stórmóti á dögunum þegar þeir tóku þátt á Evrópumóti U-20 ára liða. Þar áttu Haukar einnig fulltrúa sem hjálpuðu liðinu að ná 7. sæti mótsins sem er jöfnun á besta árangri Íslands í þessum árgangi. Í liðinu voru þeir Andri Fannar Elísson, Birkir Snær Steinsson, Össur Haraldsson og […]