Hafnarfjarðarmótið hefst í kvöld

Hafnarfjarðarótið hefst í kvöld og fer mótið fram í Strandgötunni, það er frítt inn á alla leikina. Miðviku­dag­ur 23. ág­úst 18:00 FH – Aft­ur­eld­ing 20:00 Hauk­ar – Val­ur Föstu­dag­ur 25. ág­úst 18:00 Hauk­ar – Aft­ur­eld­ing 20:00 FH – Val­ur Laug­ar­dag­ur 26. ág­úst 16:00 FH – Hauk­ar

Uppskeruhátíð yngri flokka handknattleiksdeildar Hauka

Uppskeruhátíð yngri flokka handknattleiksdeildar Hauka var haldinn á Ásvöllum föstudaginn 19 maí. Voru það bæði stelpur og strákar úr 8. – 3. flokki sem komu saman. Farið var yfir veturinn sem var mjög árangursríkur hjá yngri flokkum, bæði hvað varðar iðkendafjölda og keppni. Til Íslandsmeistara unnu 5. fl. kvenna, 6. fl. karla og 3. fl. […]

Glæsilegt lokahóf

Glæsilegt lokahóf Handknattleiksdeildar var haldið sl. föstudag í fullum Samkomusal. Góður andi ríkti á samkomunni með lystugum  mat og dillandi tónlist. Viðurkenningar veittar fyrir frábær störf og góðan árangur. Ánægðir  kvöddu samkomugestir veturinn og héldu út í milda vornóttina.

6. fl. karla eldri Íslandsmeistarar 2017

6. fl. karla eldri Íslandsmeistari 2017 Annar Íslandsmeistaratitill er kominn í hús því strákarnir í 6.fl. karla eldri tryggðu sér rétt í þessu Íslandsmeistaratitilinn með góðum árángri á síðasta mótinu. Strákarnir náðu 2. sætinu um helgina og það tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn. Við óskum Óliver og strákunum öllum innilega til hamingju með glæsilegan árangur í vetur! […]

5.fl. kvenna eldri Íslandsmeistarar 2017

5.fl. kvenna eldri Íslandsmeistarar 2017 Stelpurnar í 5.fl. kvenna eldri stóðu sig frábærlega um helgina og unnu þrjá leiki og gerðu 1 jafntefli. Með þessum frábæra árangri urðu þær Íslands- og deildarmeistari í efstu deild. Reyndar voru þær búnar að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn frá síðasta móti en þetta var fjórða mótið í röð sem þær […]

Lykilleikmenn framlengja við Hauka

Lykilleikmenn framlengja við Hauka Það eru þeir Tjörvi Þorgeirsson, leikstjórnandi, Jón Þorbjörn Jóhannsson og Heimir Óli Heimisson, línumenn og varnarjaxlar, Grétar Ari Guðjónsson og Andri Scheving, markverðir, sem hafa allir skrifað undir nýja samninga við Hauka.