Meistaraflokkslið karla og kvenna spáð öðru sæti í Olísdeildinni í vetur.

Í nýbirtum spám fyrir Olísdeildirnar er bæði kvenna- og karlaliði félagsins spáð öðru sæti á komandi keppnistímabili. Þetta endurspeglar sterka stöðu beggja liða í íslenskum handbolta og þær væntingar sem gerðar eru til árangurs þeirra í vetur. Frá síðasta tímabili hafa orðið breytingar á leikmannahópum, sem gefur bæði leikmönnum og þjálfurum ný tækifæri til að […]

Samkomulag Hauka og Báru Fanneyjar.

Knattspyrnufélag Haukar hefur gert samkomulag við Báru Fanneyju Hálfdanardóttur, sálfræðing, um að veita iðkendum félagsins aðgang að sálfræðiviðtölum í fundaraðstöðu félagsins á Ásvöllum. Markmið þessa samstarfs er að styðja við andlega heilsu íþróttafólks með því að bjóða upp á þjónustu sálfræðings með sérþekkingu á íþróttasálfræði í þeirra nærumhverfi. Bára Fanney útskrifaðist með meistaragráðu í klínískri […]

Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka 2025

Handknattleiksdeild Hauka lokaði tímabilinu með skínandi lokahófi fyrir helgi. Það var sannkölluð Haukastemning þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman til að fagna árangri, seiglu og samstöðu. Kvöldið var fyllt af gleði, hlátri og góðum mat. Verðlaunahafar vetrarins: Mfl.kk Efnilegastur – Skarphéðinn Ívar Einarsson Mikilvægastur – Guðmundur Hólmar Helgason Besti leikmaður – Aron Rafn […]

Sumaríþróttaskólinn

Sumaríþróttaskóli Hauka 2025 Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2024 fyrir börn fædd 2013-2018, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum og hafa allir kennarar skólans mikla reynslu […]

Þjálfaraskipti í sumar

Í sumar verða þjálfaraskipti hjá meistaraflokki karla en samningur Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar rennur þá út. Nýr þjálfari tekur þá við sem þekkir fjalir Ásvalla vel en það er Gunnar Magnússon. Gunnar þjálfaði meistaraflokk karla frá 2015 – 2020 en undir hans stjórn varð liðið Íslands- og deildarmeistari 2016 og deildarmeistari 2019 en það ár tapaði […]

Elín Klara til liðs við IK Sävehof

Handknattleiksdeild Hauka og IK Sävehof ásamt Elínu Klöru Þorkelsdóttur hafa komist að samkomulagi um að Elín Klara gangi til liðs við IK Sävehof núna í sumar.  Elín Klara lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Hauka í febrúar 2020 þá 15 ára að aldri. Tímabilið eftir varð hún stór hluti af liðinu og síðan var ekki aftur snúið og hefur Elín […]

Bikarmeistarar 2025!!

Meistaraflokkur kvenna í Haukum tryggði sér sigur í Powerade bikarnum síðastliðinn laugardag þegar þær lögðu Fram í spennandi úrslitaleik. Lokatölur leiksins urðu 20-25 Haukunum í vil. Þetta er sögulegur sigur fyrir Hauka, þar sem liðið hefur beðið í heil 18 ár eftir því að lyfta bikarmeistaratitlinum í kvennaflokki. Síðast unnu Haukar bikarinn árið 2007, en […]

Bikarúrslit á laugardag – Bikarsaga Haukakvenna skoðuð

Á laugardag, kl. 13:30 leika Haukastelpur í úrslitum Powerade bikarsins þegar að liðið mætir Fram. Það er því vert að kíkja aðeins á sögu Haukakvenna í bikarúrslitum. Fyrsta skiptið sem Haukastelpur komust í bikarúrslit var árið 1997 en þá var mótherjinn Valur. Haukastúlkur unnu þann leik 16 – 13 eftir að hafa verið yfir 9 […]

Evrópukeppnissjóður Hkd. Hauka

Eins og handboltaunnendum er kunnugt er þáttaka í Evrópukeppni afar dýr og lítið er um greiðslur frá EHF, líkt og meistaraflokkar í knattspyrnu fá frá UEFA. Liðin okkar þurfa að hafa alla anga úti til fjáröflunar til viðbótar við að æfa 5 sinnum í viku auk séræfinga. Því hefur Handknattleiksdeild Hauka ákveðið að hrinda nú […]