Haukar tryggðu sér sex stiga forystu í N1 deild karla í gær með því að sigra Gróttu 22-25 á Seltjarnarnesi. Haukastrákarnir þurftu heldur betur að hafa fyrir sigrinum því Gróttuliðið barðist eins og ljón og leiddu leikinn frá lokum fyrri hálfleiks og fram undir miðbik seinni hálfleiks. Markvarslan var sterk hjá Haukum eins og fyrri daginn en […]