Afmælisæfing! 27. Feb.

Já hann Ingi okkar átti afmæli í gær, í tilefni af afmælinu var í boði snakk og nammi. Einnig var sungið fyrir afmælisbarnið! En svo var snúið sér að skákinni, og þar sem við vorum bara 9 var ákveðið að taka tvöfalda umferð. En úrslitinn réðust ekki fyrr en í seinustu umferð, en þá mættust Heimir og Varði og bar Varði sigur úr bítum.

1. sæti Varði með 15 v.
2. sæti Heimir með 13 v.
3. sæti Stefán P. með 10,5 v.
4.-5. sæti Aui og Ingi með 9 v.
6. sæti Kristján með 5,5 v.
7.-8. sæti Geir og Ragnar með 5 v.
9. sæti Rúnar með 0 v.

Minni á Deildó um helgina! Og svo auðvita er æfing í næstu viku! Allaf á þriðjudögum kl. 19.30.

Kv. Kiddi(Kristján)