Æfingin þann 4. mars

Það var heldur fámennt en góðmennt út af Reykjavíkurskákmótinu – en alls mættu 9 manns. Þess vegna var ekkert annað hægt að gera en að tefla tvöfalda umferð. Varði sigraði með 15 v. af 16 mögulegum (Ingi Tandri hafði einn v. af honum) og annað sætið hreppti Jón Mag. með 11,5 v., hálfum vinningi á undan Inga sem endaði með 11 v. Aui hreppti svo 4. sætið með 9 v. Hérna koma úrslitin í heild sinni:

1. Varði með 15 v.
2. Jón Mag. með 11,5 v.
3. Ingi með 11 v.
4. Aui með 9 v.
5. Gísli með 7,5 v.
6. Geir með 6,5 v.
7. Raggi með 6 v.
8. Kristján með 3,5 v.
9. Rúnar með 2 v.

Haukaæfingar eru haldnar á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 í samkomusal Haukahússins á Ásvöllum. Allir hjartanlega velkomnir!