Afmælishátíð 12. apríl
Miðvikudaginn 12. apríl nk. ætlar félagið að fagna 75 ára afmæli sínu með glæsilegri afmælisveislu um kvöldið hér á Ásvöll. Húsið opnar kl. 19 og kl. 20 hefst hátíðardagskrá sem lýkur með dansleik til kl. 02. – Fyrr um daginn eða kl. 14 verður afhjúpað listaverk framan við húsið sem Félagsráð Hauka hefur látið gera í virðingu við stofnendur félagsins.
– Haukadagur – opið hús – verður síðan 29. apríl þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir yngri félagana. Hún verður kynnt síðar. –
HAUKUR, málgagn félagsins, kemur síðan út í apríl. – Miðasala á afmælishátíðina hefst nú um helgina. Miðaverð aðeins kr. 3500.-