Nú á dögunum lauk Skákþingi Reykjavíkur 2006. Keppendur voru 58 og komu 9 þeirra úr Haukum! Stefán Freyr og Varði áttu báðir mjög gott mót og hlutu 6 vinninga úr skákunum 9, sem er prýðisgóður árangur.
Stefán vann m.a. afgerandi sigur á Birni Þorfinnsyni (2337) og gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Jón Viktor Gunnarsson (2421). Þá gerði hann einnig jafntefli við Bergstein Einarsson (2245) og stórmeistara kvenna Lenku Ptacnikovu (2204). Stefán tapaði aðeins einni skák og þurfti verðandi sigurvegara og stigahæsta mann mótsins, alþjóðlega meistarann Stefán Kristjánsson (2467), til að leggja okkar mann af velli. Stefán hefði með smá heppni getað fengið fleiri vinninga, en hann missti, með einum afleik, vinningsstöðu gegn Hjörvari Steini niður í jafntefli, eftir að hafa verið í föðurhlutverkinu alla skákina.
Þorvarður átti bestu byrjun á skákmóti á sínum ferli hingað til. Eftir 4 umferðir var hann efstur með fullt hús ásamt Stefáni Kristjánssyni. Hann náði að svíða Benedikt Jónasson (2293) í tæpum 90 leikjum í 3. umferð og vann svo Sigurð Daða Sigfússon (2339) á glæsilegan hátt í 4. umferð. Skák þessi vakti mikla athygli og var birt í heild sinni í Morgunblaðinu með skýringum stórmeistarans Helga Áss Grétarssonar. Gaman af því. :o) Varði hlaut svo sömu örlög og Stefán Freyr gegn sigurvegara mótsins og varð svo fyrir miklu áfalli þegar hann féll á tíma í jafnteflisstöðu gegn alþjóðlega meistaranum Sævari Bjarnasyni (2240). Varði náði sér svo á strik aftur og hlaut 2 vinninga úr þremur síðustu skákunum.
Heimir og Sverrir Örn náðu sér aldrei á strik í mótinu. Báðir enduðu þeir mótið með 5 vinninga. Þeir voru reyndar frekar óheppnir að því leyti að andstæðingar þeirra voru oft á tíðum stigalægri og underrated (þ.e.a.s. mun sterkari en stig þeirra segja til um). Þar af leiðandi voru þeir félagar e.t.v. að tefla undir mun meiri pressu en við Stefán, þar sem þeir voru oftar en ekki taldir sigurstranglegri í sínum viðureignum. Eitt er þó víst að þeir Heimir og Sverrir eru miklu betri skákmenn en frammistaða þeirra í mótinu segir til um!
Sverrir Þorgeirsson er alltaf að verða betri og betri. Hann var á góðri leið með að eiga frábært mót eftir að hafa gert jafntefli við Benedikt Jónasson (2293) og Lenku Ptacnikovu (2204). Töp gegn tveimur stigalægri mönnum skemmdu þó soldið mótið fyrir honum og endaði hann með 4,5 vinning. Jafnteflin við þessa tvo sterku skákmenn eru þó frábær árangur og við Haukamenn getum verið afar stoltir af þessari skærustu vonarstjörnu okkar! :o)
Ingi Tandri og Ingþór Stefánsson hlutu 4 vinninga og Daníel 3,5 vinning. Miðað við andstæðinga þá veit maður ekki alveg hvernig á að dæma þennan árangur. Sjálfsagt bæði ljósir punktar og dökkir. Sjálfur er ég alltaf í bullandi vandræðum með þessa kappa á Haukaæfingum! :o) Með aukinni reynslu af kappskákmótum, munu þessir þrír án efa koma til með að bæta sig!
Geir Guðbrandsson er líkt og Sverrir Þorgeirss einn af unglömbunum okkar. Hann hlaut 2,5 vinning í mótinu. Geir hefur verið að sýna hvað mestar framfarir á Haukaæfingunum og verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni. Þetta mót fer beint í reynslubankann hjá honum.
Kveðja, Varði.