Haukamenn verða í sviðsljósinu í 5. umferð Skákþings Reykjavíkur, en taflið hefst kl. 19.00. Þorvarður Fannar Ólafsson er efstur ásamt Stefáni Kristjánssyni, og mætast þeir á 1. borði, Varði með hvítt. En einnig tefla Stefán Freyr, Heimir og Sverrir Þorgeirsson á efstu borðunum. Stefán fær Bergstein Einarsson, Heimir mætir Lárusi Knútssyni og Sverrir teflir við Lenku Ptacnikovu, en allir hafa þeir svart í kvöld.
Um aðrar viðureignir, sjá: www.skaknet.is og www.skak.is