Á æfingunni 10.janúar urðu Árni og Sverrir efstir og jafnir með 16,5 vinninga af 20 mögulegum. Toppbaráttan var jafnari en oft áður enda vantaði þá Varða og Heimi, sem eiga það til að skipa efstu sætin. Jón varð þriðji með 15 v. og Ingi fjórði með 14 v.
Geir er allur að koma til og gerði sér m.a. lítið fyrir og tók 1,5 vinninga á móti Jóni hörkutóli og einnig vann hann aðra skákina á móti Árna.
Rúnar nældi sér líka í 2,5 vinninga og hefðu þeir auðveldlega geta orðið mun fleiri hjá honum.
Annars voru úrslitin þannig (Tefld var tvöföld umferð):
1-2.Sverrir junior 16,5 af 20
1-2.Árni 16,5
3.Jón 15
4.Ingi 14
5.Stefán 13,5
6.Geir 8
7-9.Sverrir eldri 6,5
7-9.Raggi 6,5
7-9.Kristján 6,5
10.Baldur 5,5
11.Rúnar 2,5