Skákæfing 13.september 2005.

10 manns mættu á skákæfinguna í fyrrakvöld. Þetta var ágætis mæting í ljósi þess að fjórir af virkustu skákmönnum Hauka voru að tefla á sama tíma í skákþingi Garðabæjar sem nú stendur yfir. Þetta var gríðarlega jöfn og spennandi æfing, en tefld var tvöföld umferð. Daníel tók strax forystuna og leiddi mótið allt fram í síðustu umferð. 0-2 tap gegn Stefáni Péturssyni í lokaumferðinni varð honum dýrkeypt, því Varði sem vann síðustu fjórar skákir sínar, náði að læðast upp í 1.sætið. Svekkjandi fyrir Daníel, sem vann sex 2-0 sigra, tveimur meira en næstu menn. Lokastaðan varð annars eftirfarandi:

1…Þorvarður Fannar………..14,5 af 18
2-3.Daníel Pétursson………..13,5
2-3.Jón Magnússon…………..13,5
4…Stefán Pétursson…………13
5-6.Guðmundur Guðmundsson…….10
5-6.Ragnar Árnason…………..10
7-8.Arnar Jónsson……………5
7-8.Kristján Ari Sigurðsson…..5
9…Brynjar Ísak Arnarsson…..4,5
10..Rúnar Jónsson……………1