Haukamenn áttu frábært mót á Skákþingi Íslands sem er nýlokið. Heimir Ásgeirsson og Snorri Bergsson tefldu í Landsliðsflokki og er ekki neinn hallað að segja að Heimir hafi verið maður mótsins. Heimir fékk 5,5 vinninga og lenti í 6. sæti, eða 50% þrátt fyrir að vera langstigalægsti maður mótsins.
Til hamingju Heimir frábær árangur og væntanlega þó nokkrar stigahækkanir 1. sept. Snorri stóð sig einnig með ágætum og varð í 7. sæti með 5 vinninga.
Í Áskorendaflokki kepptu svo þeir Þorvarður Ólafsson, Sverrir Örn Björnsson, Sverrir Þorgeirsson og Einr G. Einarsson.
Þorvarður náði þeim frábæra árangri að lenda í 1-3 sæti, með 6,5 v. og veitir það honum rétt til að keppa í Landsliðsflokki á næsta ári. Frábært Varði og til hamingju. Sverrir Örn og Sverrir Þorgeirsson stóðu sig einnig vel og urðu í 12-15 sæti með 5 v. hársbreidd frá því að fá að keppa um laust sæti í Landsliðsflokki á næsta ári. Einar G. Einarsson var svo óheppinn að andstæðingar hans hættu keppni í umvörpum, líklega hræddir við hann og lenti í 29-30 sæti með 3 v. Frábært að sjá að Einar er byrjaður að tefla aftur og er vonandi að hann mæti vel á æfingar í vetur.
Til hamingju Haukamenn.