Strákarnir mættir!

Allir Haukamennirnir eru mættir til Köben!
Sigurbjörn og Skákmeistari Hafnarfjarðar, Þorvarður Fannar Ólafsson komu síðastir á föstudagskvöld. Íbúðin sem við fengum er frábær, hér er allt til alls.
Við hinir tókum Köben með trompi í dag, hittum meðal annars snillinginn Rúnar Berg sem er á hótelinu þar sem mótið fer fram. Hann lenti í þeirri skemmtilegu lífsreynslu að vísa hinu aldna stórmenni Victor Korchnoi til herbergis, en sá gamli átti í smáerfiðleikum með að finna aðra hæð!
Fyrsta umferð verður tefld á morgun og eins og staðan er nú, þá er líklegt að Þorvaður fái Inga í fyrstu umferðinni.. Við krossum fingur og vonum hið besta!