Sævar Bjarnason alþjóðlegur meistari sigraði örugglega á Skákþingi Hafnarfjarðar sem lauk fyrr í dag. Þorvarður Fannar Ólafsson skákmeistari Hafnarfjarðar 2004 og Páll Sigurðsson þurfa að tefla einvígi um titilinn skákmeistari Hafnarfjarðar 2005 en þeir lentu í 2-3 sæti á mótinu. Sævar býr ekki í Hafnarfirði og teflir fyrir Taflfélag Vestmannaeyja.
Aukaverðlaunum skiptu þeir Svanberg Már Pálsson, Sverrir Þorgeirsson og Ingi Tandri Traustason á milli sín.
Skoðum fyrst 6. umferð.
No Name Result Name
1 Kristján Ari Sigurðsson, (9) 0:1 Sævar Jóhann Bjarnason, (1)
2 Sveinn Arnarsson, (5) 0:1 Þorvarður F Ólafsson, (2)
3 Svanberg Már Pálsson, (7) 1:0 Ingi Tandri Traustason, (6)
4 Páll Sigurðsson, (3) 1:0 Snorri Sigurður Karlsson, (8)
5 Sverrir Þorgeirsson, (4) 1:0 BYE
Sævar vann Kristján örugglega og tryggði með því sigurinn í mótinu, hið sama gerði Þorvarður gegn Sveini. Svanberg og Ingi Tandri tefldu hörkuskák þar sem Ingi fékk mun betra en valdi rangt framhald og þá leindist mikil dýnamík í stöðu Svanbergs sem vann stuttu síðar. Páll vann Snorra í langri og erfiðri skák sem þar sem Snorri tapaði að lokum peði og síðan stöðunni.
7. og síðasta umferð.
No Name Result Name
1 Snorri Sigurður Karlsson, (8) .5:.5 Sævar Jóhann Bjarnason, (1)
2 Sverrir Þorgeirsson, (4) .5:.5 Þorvarður F Ólafsson, (2)
3 Páll Sigurðsson, (3) 1:0 Svanberg Már Pálsson, (7)
4 Sveinn Arnarsson, (5) 1:0 Kristján Ari Sigurðsson, (9)
5 Ingi Tandri Traustason, (6) 1:0 BYE
Snorri tefldi byrjunina vel gegn Sævari og sættust þeir á skiptan hlut. Vel gert hjá Snorra. Þorvarður og Sverrir tóku hálf óskiljanlega ákvörðun þegar þeir sömdu einnig fljótlega. Sveinn var stálheppinn gegn Kristjáni Ara sem átti þráskák, en ákvað í staðinn að vinna mann. Hann tefldi svo illa í framhaldinu og Svenni mátaði.
Páll og Svanberg tefldu lengstu skák umferðarinnar þar sem Páll hafði sigur að lokum eftir að Svanberg hafði misstigið sig í byrjun en hélt ótrúlega lengi út.
Lokastaðan í mótinu er því:
Place Name Feder Rtg Loc Score M-Buch. Buch.
1 Sævar Jóhann Bjarnason, TV 2284 2280 6.5 21.0 24.5
2-3 Þorvarður F Ólafsson, Hauk 2126 2080 5 23.5 30.0
Páll Sigurðsson, TG 1914 1795 5 22.5 26.0
4-6 Svanberg Már Pálsson, TG 1505 4 24.0 27.5
Sverrir Þorgeirsson, Hauk 1946 1615 4 22.0 25.5
Ingi Tandri Traustason, Hauk 1560 4 21.5 27.0
7 Sveinn Arnarsson, Hauk 1610 3 24.5 29.0
8 Snorri Sigurður Karlsson, Hauk 1450 2.5 23.5 28.0
9 Kristján Ari Sigurðsson, Hauk 1 23.0 28.5