Skákþing Hafnarfjarðar 5 umf lokið

Sævar Bjarnason hefur tekið afgerandi forystu í mótinu og hefur fullt hús og 1,5 vinnings forskot á næsta mann. Þorvarður er í 2. sæti með 3,5 vinning en síðan koma þeir Páll, Svanberg og Ingi Tandri með 3 vinninga.

Úrslit 4 umf.
No Name Result Name

1 Sævar Jóhann Bjarnason, (1) 1:0 Þorvarður F Ólafsson, (2)
2 Ingi Tandri Traustason, (6) .5:.5 Páll Sigurðsson, (3)
3 Snorri Sigurður Karlsson, (8) 0:1 Svanberg Már Pálsson, (7)
4 Sveinn Arnarsson, (5) .5:.5 Sverrir Þorgeirsson, (4)
5 Kristján Ari Sigurðsson, (9) 1:0 BYE

Sævar rúllaði yfir Þorvarð. Svanberg vann Snorra nokkuð örugglega og Sveinn og Sverrir gerðu jafntefli. Skák Inga og Páls var hins vegar söguleg í meira lagi. Ingi tefldi 4 peða árás á móti Páli sem missti oft af leikjum sem hefðu leitt til betra tafls. Síðan gerðist það að Ingi ákvað að taka skiptamun en í staðinn rann sókn hans út í sandinn og Páll fór í skókn. Kóngstaðan splundraðist og Páll vann skiptamunin til baka og kom þá upp tiltölulega jöfn staða sem Páll klúðraði og Ingi fékk kolunnið. Staðan endaði í riddaraendatafli þar sem Páll hafði Riddara en Ingi Riddara og þrjú peð. Ingi klúðraði þó málunum í tímahrakinu og Páll endaði að ná jafntefli eftir að síðasta peðið dó. Þá átti Ingi 2 sek á klukkunni.
Spurning hvað hefði gerst hefði Páll leikið Riddaranum í burt í stað þess að drepa síðasta peðið og fella Inga í staðinn á tíma. Slíkt er þó varla mjög siðlegt.

5. umferð fór einnig fram í dag og urðu úrslit eftirfarandi:
No Name Result Name

1 Sævar Jóhann Bjarnason, (1) 1:0 Svanberg Már Pálsson, (7)
2 Þorvarður F Ólafsson, (2) .5:.5 Páll Sigurðsson, (3)
3 Ingi Tandri Traustason, (6) .5:.5 Sveinn Arnarsson, (5)
4 Kristján Ari Sigurðsson, (9) 0:1 Sverrir Þorgeirsson, (4)
5 Snorri Sigurður Karlsson, (8) 1:0 BYE

Sævar vann Svanberg á solid hátt og endaði á að nudda hróksendatafl 2 peðum yfir. Þorvarður og Páll gerðu jafntefli í skandinavanum í óljósri stöðu þar sem hvorugur var allskostar ánægður með stöðuna. Ingi og Sveinn gerðu einnig jafntefli eftir að slavinn kom upp og loks vann Sverrir Kristján á mjög öruggann hátt.

Staðan eftir 5 umferðir er því:
Place Name Feder Rtg Loc Score M-Buch. Buch.

1 Sævar Jóhann Bjarnason, TV 2284 2280 5 9.5 14.0
2 Þorvarður F Ólafsson, Hauk 2126 2080 3.5 11.0 16.5
3-5 Páll Sigurðsson, TG 1914 1795 3 11.5 14.5
Svanberg Már Pálsson, TG 1505 3 11.0 14.0
Ingi Tandri Traustason, Hauk 1560 3 9.0 13.0
6 Sverrir Þorgeirsson, Hauk 1946 1615 2.5 10.0 13.0
7-8 Sveinn Arnarsson, Hauk 1610 2 11.0 16.0
Snorri Sigurður Karlsson, Hauk 1450 2 8.5 12.0
9 Kristján Ari Sigurðsson, Hauk 1 8.5 13.0

Í fyrramálið kl. 10 hefst 6. umferð og er pörun eftirfarandi:
No Name Result Name

1 Kristján Ari Sigurðsson, (9) : Sævar Jóhann Bjarnason, (1)
2 Sveinn Arnarsson, (5) : Þorvarður F Ólafsson, (2)
3 Svanberg Már Pálsson, (7) : Ingi Tandri Traustason, (6)
4 Páll Sigurðsson, (3) : Snorri Sigurður Karlsson, (8)
5 Sverrir Þorgeirsson, (4) 1:0 BYE

Á þessu sést að þátttakendur á mótinu eru full fáir þegar efsti maður fær þann neðsta í 6 umf.