Heimir Ásgeirsson vann yfirburðasigur á síðustu þriðjudagsæfingu. Heimir hlaut 17 vinninga af 18 mögulegum og tapaði ekki skák.
Í öðru sæti, heilum 3 vinningum á eftir, varð ánægðasti maður kvöldsins Þorvarður Fannar, en hann var mættur í Haukahúsið klukkan hálf sjö til að fylgjast með hetjunum sínu spila gegn Chelsea í meistaradeildinni.
Sverrir Þorgeirsson hafnaði svo í 3.sæti, en hann er virkilega búinn að sanna sig sem topp þrjú maður á æfingunum!
Lokastaðan:
1..Heimir Ásgeirsson…………….17 af 18.
2..Þorvarður Fannar……………..14
3..Sverrir Þorgeirsson…………..12,5
4..Páll Sigurðsson………………11,5
5..Auðbergur Magnússon…………..10,5
6..Svanberg Már Pálsson………….8,5
7..Brynjar Ísak Arnarsson(9 ára)….6,5
8..Baldur Snæhólm……………….4
9..Sverrir Gunnarsson……………3,5
10.Kristján Ari Sigurðsson……….2