Skákæfing 15.mars 2005

Heimir og Þorvarður voru í nokkrum sérflokki á skákæfingunni í gærkveldi. Þátttakendur voru 13.

Varði byrjaði á því að grísa á jafntefli gegn Svanberg Má Pálssyni, en tókst síðan að leggja alla andstæðinga sína af velli eftir það. Þ.á.m. Heimi í skák sem gat farið á hvorn veginn sem var.

Lokastaðan varð eftirfarandi:

1….. Þorvarður Fannar……… 11,5 af 12
2….. Heimir Ásgeirsson…….. 11
3-4… Ingi Tandri Traustason… 8,5
3-4… Jón Magnússon………… 8,5
5….. Svanberg Már Pálsson….. 8
6….. Páll Sigurðsson………. 7
7….. Grímur Ársælsson……… 5,5
8….. Arnar Jónsson………… 5
9-10.. Sveinn Arnarsson……… 4
9-10.. Ragnar Árnason……….. 4
11…. Baldur Snæhólm……….. 2
12-13. Kristján Ari Sigurðsson.. 1
12-13. Marteinn Þór Harðarson… 1

Í lokin slógum við svo upp liðakeppni og voru liðin þannig skipuð:

Lið A: Varði, Ingi, Arnar, Baldur.
Lið B: Heimir, Jón, Ragnar, Kristján.

A-liðið vann fyrstu umferðina 3-1 og í næstu tveimur umferðum skildu liðin jöfn 2-2. B-liðið sýndi hins vegar mikinn karakter og náði að sigra 3,5 – 0,5 í lokaumferðinni og tryggði sér þar með sigur í viðureigninni!

Lokatölur urðu 8,5 – 7,5 B-liðinu í vil.