Skákæfing 1.febrúar 2005.

Árni Þorvaldsson vann sannfærandi sigur á skákæfingunni í gærkveldi. Þátttaka var mun betri en fyrir viku síðan, eða 14 manns. Jafnir í 2-3. sæti urðu þeir Jón og Varði. Vegna fjölda heppnissigra auk þess að hella niður kaffi, verður Varði þó að gera sér 3.sætið að góðu!

1. Árni Þorvaldsson 11

2. Jón Magnússon 10

3. Þorvarður Fannar 10

4. Stefán Pétursson 8,5

5. Auðbergur Magnússon 8

6-7. Sverrir Þorgeirsson
Ingi Tandri Traustason 7,5

8. Grímur Ársælsson 7

9-10. Svanberg Már (þurfti að fara fyrr)
Kristján Ari Sigurðsson 5,5

11. Ragnar Árnason 4,5

12. Sverrir Gunnarsson 4

13. Geir Guðbrandsson 1

14. Rúnar Jónsson 0

Þá var komið að liðakeppninni og voru liðin skipuð eftirfarandi mönnum:

Lið A: Árni, Stefán P., Aui, Ingi, Sverrir G., Geir.

Lið B: Jón, Varði, Sverrir Þ., Raggi, Kristján, Rúnar.

A-liðið tók forystuna strax í upphafi og hélt henni allt til loka. Lokatölur urðu 20-16.

Eins og við var að búast var þetta mjög skemmtileg æfing. Þó mættu menn vera stundvísari. Aðeins örfáir voru mættir kl.19:30 og voru menn að tínast inn allt til kl.20:15. Að því gefnu að hægt væri að byrja alltaf á mínútunni hálf-átta, myndu líkurnar aukast á því að ná tvöfaldri umferð. 🙂