2 Barnaæfingar eftir fyrir jól

Á æfingu 7. des verður haldið jólamót Hauka og verða veit verðlaun fyrir efstu sæti auk þess sem vinningar verða dregnir út.

Á æfingu 14 des sem er síðasta æfingin fyrir jól og áramót verður haldin æfing þar sem foreldrum er boðið að vera með á æfingu og taka þátt í skákinni og fylgjast með krökkunum.

Við byrjum svo aftur fljótlega eftir áramótin eða 11. jan en þá tökum við létta æfingu til að undirbúa krakkana sem ætla að taka þátt í Íslandsmóti Barna 10 ára og yngri (fædd 94 og síðar) sem verður haldið í Reykjavík 15 og 16 jan.

Að lokum vil ég benda á að skákskóli íslands er kominn með heimasíðu þar sem meðal annars má finna mjög gott kennsluefni á myndböndum sem hægt er að horfa á beint yfir netið. slóðin er http://www.skakskolinn.is/

Til að verða betri en næsti maður í skák er nauðsynlegt að æfa sig heima. Vera dugleg(ur) að lesa skákbækur og ekki vera feimin við að spyrja ef þið eruð ekki viss eða viljið fá skýringar.