Einn besti skákmaður Hauka Þorvarður F Ólafsson, leysti af og tók fyrstu æfingu mánaðarins.
Næstu æfingu þar á eftir var breytt um form og horft á vídeo og borðuð pizza.
Á síðustu æfingu 16. nóv var hinsvegar haldin æfingamót í liðakeppni. Nokkuð fáir voru mættir á æfinguna en einungis 12 mættu, en líklega má kenna um mjög slæmu veðri þegar æfingin var að hefjast.
4 3 manna lið voru skipuð en þetta voru liðin Arsenal, þar sem Davíð var fyrirliði, Liverpool þar sem Starri var fyrirliði, Stelpur þar sem Agnes Linnet var fyrirliði og síðast en ekki síst liðið Cool þar sem Hans Adolf Linnet var fyrirliði.
Liverpool og Cool byrjðu best en síðan tók Cool forustuna um miðbikið en eftir tap í innbyrðisviðureigninni þá skaust Liverpool fram úr í síðustu umferð.
Úrslit urðu eftirfarandi.
1. Liverpool. 6 v. (Starri, Emil og Jón Hákon)
2. Cool 5,5 v. (Hans Adolf, Jón Guðnason og Árni Freyr)
3. Arsenal 5 v. (Davíð, Birgir og Gísli Freyr)
4. Stelpur 1,5v. (Agnes, Guðrún og Andrea)
Tími var fyrir eina skák í viðbót þannig að þá var skipt í 2 lið og úrslit urðu þannig að Chelsea sigraði FH 4-2.
Starri tapaði fyrir Hans.
Davíð vann Emil
Jón Hákon tapaði fyrir Agnesi
Jón Guðna vann Birgi
Gísli Freyr vann Árna Frey
Guðrún vann Andreu.