Það var góð mæting á fjölteflið við Jaan Ehlvest sem fram fór í gær, eða 19 manns.
Þannig fór að sá sem var búinn fyrstur var Grímur Ársælsson og gerði hann sér lítið fyrir og vann Ehlvest.
4 aðrir gerðu jafntefli en það voru þeir, Stefán Pétursson, Sigurður P. Guðjónsson, Þorvarður Ólafsson og Stefán Freyr Guðmundsson.
Fyrir fjölteflið hélt Jaan smá fyrirlestur og fór yfir skákir, þar sem hann vara að kynna bók sem hann er að gefa út á næstu vikum.
Við hjá skákdeild Hauka þökkum þeim sem komu og tefldu og þá ekki síst Jaan Ehlvest.