Deildarkeppnin í skák fer fram um næstu helgi. Teflt verður í Menntaskólanum í Hamrahlíð.
Við Haukamenn teflum fram vöskum sveitum (4) og stefnum við á að koma A sveitinni upp í 1. deild og svo B- sveitinni upp í 3. deild.
Þetta verður erfitt en skemmtilegt verkefni að takast á.
Þeir sem hafa áhuga á að tefla um næstu helgi eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Auðberg í síma 821-1963 eða skak@haukar.is eða aui@simnet.is Einnig er hægt að hafa samband við Inga Tandra í 695-0779.