Heimir Ásgeirsson sigraði enn einu sinni á skákæfingu sem haldin var síðastliðið þriðjudagskvöld. Þátttakendur voru 13 og var mótið nokkuð þétt að þessu sinni. Gaman var að sjá þá Lárus Knútsson, Sigga P. og Stefán Frey mæta og yrði enn meira gaman að sjá þá oftar í nánustu framtíð. Þá hefur Grímur undanfarnar vikur sýnt það og sannað að hann gefur yngstu kynslóðinni ekkert eftir í framförunum!
Lokastaðan:
1. Heimir Ásgeirsson 11v. af 12 (+10 =2 -0)
2-3. Lárus Knútsson.
Þorvarður F. 9
4. Stefán Freyr 8,5
5. Grímur Ársælsson 8
6-7 Jón Magnússon
Sverrir Örn 7
8. Siggi P. 6,5
9-10. Auðbergur Magnússon
Ingi Tandri 3,5
11. Snorri Karlsson 3
12. Baldur Snæhólm 2
13. Kristján Sigurðsson 0
Þá var komið að liðakeppninni, en að venju var tekið mið af frammistöðu manna á æfingunni og skipt sem jafnast í lið. Þar sem við höfðum þó nokkurn tíma aflögu, gátum við teflt allir gegn öllum. Liðin voru eftirfarandi:
Lið A:
Heimir, Stefán Fr, Grímur, Ingi, Aui, Kristján.
Lið B:
Varði, Lárus, Jón, Sverrir, Snorri, Baldur.
Viðureignin var hnífjöfn lengi framan af, en í næst síðustu umferð náði B-liðið góðri forystu og sigraði að lokum með 20,5 vinningi gegn 15,5.