Búið að draga um töfluröð!

Búið er að draga um töfluröð á Íslandsmóti skákfélaga, sem fram fer helgina 19-21.nóvember. Við erum nr.2 í töflunni í 2.deild og fáum Bolvíkinga, eina af verðugustu andstæðingunum, strax í fyrstu umferð. Prógrammið er annars eftirfarandi.

Fyrir jól:

1. umf. Bolungarvík (H)

2. — Akranes (S)

3. — Kópavogur (H)

4. — Reykjanesbær (H)

Eftir jól:

5. — Selfoss og nágr. (S)

6. — KR (H)

7. — TR C-sveit (S)

Flestir sem viðstaddir voru dráttinn, voru ekki að spara yfirlýsingarnar um það við Haukarnir myndum rúlla þessari deild upp! Vissulega er markmiðið að fara upp í 1.deild í vor, en það verður aldrei áreynslulaust, auk þess sem allar glans-spár setja aukna pressu á okkur. Reyndar hefur okkur undanfarin 2 ár verið spáð sigri í okkar deild og höfum við, þrátt fyrir væntingarnar, náð að klára þetta sannfærandi. Með því að vera á tánum og leggja okkur alla fram, á ég von á góðu móti hjá okkur.

Að sjálfsögðu er það von okkar að B-sveitin nái fljótlega að komast upp í 3.deild. Væntanlegt lið okkar hefði eflaust átt alla möguleika á að fara upp síðastliðið vor, en hætt er við því að róðurinn verði þyngri nú. 4.deildin hefur styrkst töluvert á toppnum. Sem dæmi má nefna úrsögn Hróksins, en nokkrir af þeirra vösku mönnum hafa gengið til liðs við skákdeild Fjölnis í Grafarvoginum. Þá má búast við yfir 2000 stiga mönnum á efstu borðum Vestmannaeyinga-B í kjölfar mikillar styrkingar A-sveitar þeirra.

Við vonum nú samt það besta og styðjum hvern annan í þessu!

Baráttukveðjur, Varði.

———————————————-

* (H) og (S) = Litur á 1.borði.