Alls eru 6 krakkar og unglingar úr Haukum á Íslandsmóti Drengja og Stúlkna sem haldið er nú um helgina. Mótið er mjög fjölmennt og eru alls 70 krakkar með.
Sverrir Þorgeirsson er meðal efstu manna með 4 vinninga af 5 mögulegum nú þegar mótið er rúmlega hálfnað.
aðrir eru
Kristján Ari Sigurðsson 3 v.
Davíð Reginsson 2 v.
Hans Adolf Linnet 2 v.
Valur Elli Valsson 1. v.
Jón Guðnason 0 v.
Þess ber að geta að Valur er einungis 6 ára og þeir Hans og Jón 8 ára og Davíð litlu eldri þannig að árangur þeirra er mjög góður mv. að elstu krakkarnir í mótinu eru 15 ára á árinu.
Mótið heldur áfram kl. 13 í dag og er telft í húsnæði Íslandsbanka að Kirkjusandi. Mótið er haldið í samráði Skáksambands Íslands og Skákfélagsins Hróksins.
Nánar má sjá um úrslit mótsins á www.skak.is.