12 manns mættu á skákæfingu fyrir viku síðan. Líkt og á æfingunni þar á undan vantaði nokkra þungaviktarmenn, en þeir hafa verið mjög virkir undanfarið og hafa verið að taka þátt í hverju skákmótinu á fætur öðru. Rögnvaldur (sonur Jóns) mætti og gerði mikinn usla. Þarna er án efa á ferðinni mjög frambærilegur skákmaður, sem hefur ekki langt að sækja keppnishörkuna, en hann var virkilega harður þegar í tímahrakið var komið!
1. Þorvarður 9,5 af 11
2-3. Jón Magnússon 9
Auðbergur 9
4. Rögnvaldur 8,5
5. Gísli Ásgeirss.6,5
6. Ingi Tandri 6
7. Grímur 5,5
8. Sverrir Þ. 5
9. Svanberg 4
10. Sverrir (eldri) 2
11. Kristján 1
12. Baldur 0