Fjórðu umferð lauk á miðvikudagskvöldið. Haukamenn stóðu sig mjög vel með litlum undantekningum. Þorvarður Fannar Ólafsson att kappi við Patrick Svansson, Keflvíking sem er á hraðri uppleið ef mið er tekið af taflmennsku hans það sem af er mótii.
Þorvarður var með svart og staðan í jafnvægi eftir því sem ég sá. Næst þegar mér er litið á skákborðið blasir við skemmtileg staða sem Þorvarður þekkir betur heldur en handarbak sitt; sex peð á mann, Patrick með biskup og Þorvarður með riddara. á stöðumyndinni(Þar að segja, ef hún birtist) á svartur leik og dró hann upp úr erminni Rd7! þótt hann sé borðleggjandi er hann árangursríkur og Varði náði báðum peðunum á drottningarvængnum og uppskar sigur örfáum leikjum síðar. (Ég fullyrði að Varði er með styrkleika upp á 2700 eló í endatöflum.)
Ingi Tandri Traustason hringdi í mig á hádegi fyrir umferðina og tjáði mér það að hann muni tefla Benckö bragð ef til þess kæmi. Hann att kappi við Þorleif Einarsson. Ingi náði fallegu peði á e5 snemma í skákinni og rúllaði síðan yfir andstæðinginn í örfáum leikjum.
Sveinn Arnarsson stýrði hvítu mönnunum gegn Hauk Þorgeirssyni, bróður Sverris. Sveinn var heillum horfinn út alla skákina gegn mjög vel stúderuðum andstæðing. Haukur vann skiptamun af Sveini og bauð síðan jafntefli???? Haukur var með yfirburðarstöðu á borðinu og Sveinn þakkaði fyrir gjöfina og tók undir eins í hönd hans.
Svanberg Már og Sverrir Þorgeirsson mættust. Í hvert skipti sem mér var litið á stöðuna fannst mér hún í jafnvægi, ellegar Svanberg stæði örlítið betur. Ég bjóst við jafntefli en var tjáð síðan að Sverrir hefði unnið endataflið. Ekki veit ég hvernig en óska honum til hamingju með sigurinn.
Einar G Einarsson stýrði svörtu gegn Elsu Maríu Þorfinnsdóttur. Einar G tefldi af miklu öryggi og eftir að Elsa lék f peði sínu fram var Einar kominn með rjómastöðu. Biskupinn á h6 varð að stórveldi auk þess sem e5 reiturinn opnaðist fyrir riddara einars sem stóð á d7. Fór hann í sókn fram á borðið(FRAM-sókn) og átti Einar G ekki í erfiðleikum með úrvinnsluna þrátt fyrir tímahrak.
Sverrir Örn hafði hvítt gegn Sigurði H. Jónssyni. Þeir sömdu um jafntefli í skák, þar sem litlar áhættur voru teknar.
Þorgeir hafði hvítt gegn Hallgerði og náði að svíða hana í fræðilegri jafnteflisstöðu! Það má segja að það sé margt líkt með þeim feðgum.
Skákir næstu umferðar verða án efa slagur Inga Tandra Traustasonar gegn Sveini Arnarssyni og nafnaslagurinn milli Sverris Arnar Björnssonar og Sverris Þorgeirssonar.
Staða Haukamanna er þessi:
1-3. Þorvarður 3,5
6-8. Sverrir Örn og Sverrir Þ. 2,5
9-12. Sveinn og Ingi Tandri 2
13-19. Einar og Þorgeir 1,5