Skákþing Garðabæjar 3.umferð !

Þar kom loksins að því að Haukamenn næðu sér almennilega á strik, en af þeim 7 vinningum, sem í boði voru í Garðabænum, voru 5 sóttir!

Undiritaður náði fínni skák (a.m.k. segir tölvan það) gegn formanni T.G., Páli Sigurðssyni. Eftir þó nokkrar vangaveltur ákvað ég að beita Lasker-afbrigði Sikileyjarvarnarinnar (Schvesnikov). Þetta herbragð gekk fullkomnlega upp. Palli missteig sig í byrjuninni og svo aftur í miðtaflinu. Það má jafnan lítið út af bregða í þessu afbrigði og slíkt fékk hvítur að reyna. Hafa verður þó í huga að Palli er í því vanmetna hlutverki að vera bæði þátttakandi og mótstjóri. Slíkt hefur án efa áhrif á einbeitinguna, sérstaklega þegar hann þurfti að standa upp og huga að öðrum viðureignum á eigin tíma.

Sverrir Örn tefldi með svörtu gegn Þóri Benediktsyni. Sverrir beitti Sikileyjarvörn eins og undirritaður en öðru afbrigði, 2.-e6. Sverrir lenti í einhverju ströggli og leist víst ekkert alltof vel á stöðuna í miðtaflinu. Eftir að Þórir lék af sér peði, fyrir litlar sem engar bætur, lifnaði svarta staðan heldur betur við og Sverrir landaði vinningnum að öryggi.

Sverrir Þorgeirsson vann góðan sigur á Hallgerði. Þegar undirritaður leit síðast á stöðuna, var Sverrir orðinn manni yfir í endatafli og ekki að sökum að spyrja.

Einar lenti í miklum hremmingum gegn hinum bráðefnilega Svanbergi Pálssyni. Svanberg náði snemma stórsók sem knúði Einar til uppgjafar.

Svenni og Þorgeir áttust við í Haukaslag umferðarinnar. Þetta var mikil baráttuskák. Þorgeir hafði svart og með drottningu og riddara að vopni lagði hann af stað í kóngssókn, en Svenni hafði hrókað stutt. Svenni var hins vegar við öllu búinn og varðist fimlega. Hann náði að þvinga fram drottningarkaup sem Þorgeir mátti alls ekki við. Þorgeir reyndi að halda í drottninguna en missti mann í kjölfarið og þar með var öll von úti. Fín stöðubaráttutaflmennska hjá Svenna.

Að lokum náði Ingi Tandri langþráðum sigri þegar hann hafði betur gegn Elsu Maríu. Ingi hafði hvítt og var sigurinn nokkuð öruggur.

Að lokinni 3.umferð er staða Haukamanna þessi:

1. Þorvarður 2,5
2. Sverrir Örn 2
3-4. Sverrir Þ. og Sveinn 1,5
5. Ingi 1
6-7. Einar og Þorgeir 0,5

Viðureignir Haukamanna í næstu umferð, nánar tiltekið í kvöld, verða eftirfarandi:

Patrick Svansson – Þorvarður
Sverrir Örn – Sigurður H. Jónsson
Svanberg – Sverrir Þorgeirsson (Mjög athyglisverð viðureign!)
Haukur Þorgeirsson – Sveinn
Þorleifur Einarsson – Ingi Tandri
Þorgeir – Hallgerður
Elsa María – Einar

Svo er bara að fjölmenna og hvetja okkar menn !!!