Nokkrir Haukamenn taka nú þátt í skákþingi Garðabæjar, sem hófst í gærkveldi. Tímamörkin eru 90 mín + 30 sek per leik á alla skákina og er fyrirkomulagið svokallað Garðabæjarmonrad (svissneska kerfið í fyrstu tveimur umferðunum og svo hefðbundið Monrad).
Töluverður stigamunur var á keppendum í 1.umferðinni og voru úrslit flest eftir bókinni. Undirritaður lenti þó í miklum hremmingum gegn mjög svo underrated Reyknesingi, Júlíusi Guðmundssyni, og mátti þakka fyrir það að ná þráskák!
Sverrir Örn og Einar G. öttu kappi í Haukaslag umferðarinnar. Skákin var mjög skautleg! Eitthvað fór byrjun Einars úrskeiðis og var Sverrir kominn með kolunnið tafl eftir örfáa leiki! Sjálfsagt hefur Sverrir, sökum margra vænlegra leiða, misst einbeitingu og tefldi ekki nógu vel í framhaldinu. Svörtu stöðunni var samt ekki hægt að bjarga, en Einari tókst með hetjulegri baráttu að gera þetta að lokaskák kvöldsins!
Þeir Sveinn Arnarson og Ingi Tandri, áttu erfitt uppdráttar gegn mun stigahærri andstæðingum og þá töpuðu þeir feðgar, Þorgeir og Sverrir, sömuleiðis sínum skákum. Þar sem ég átti fullt í fangi með mína skák tókst mér því miður ekki að fylgjast næganlega vel með framvindu annarra skáka. Vona að mér sé fyrirgefið með það! :o)
Frammistaða Haukamanna í 1.umferðinni varð eftirfarandi:
Sveinn Arnarsson – Davíð Kjartansson 0 – 1
Þorvarður Ólafsson – Júlíus Guðmundsson 0,5 – 0,5
Ingi Tandri Traustason – Jóhann H. Ragnarsson 0 – 1
Sverrir Þorgeirsson – Guðlaug Þorsteinsdóttir 0 1
Sverrir Örn Björnsson – Einar G. Einarsson 1 – 0
Atli Freyr Kristjánsson – Þorgeir Sigurðsson 1 0
Staða Haukamanna að lokinni 1.umferð er þessi:
1. Sverrir Örn Björnsson 1
2. Þorvarður F. Ólafsson 0,5
3-7. Sveinn Arnarsson,
Ingi Tandri,
Sverrir Þorgeirsson,
Einar G. Einarsson,
Þorgeir Sigurðsson 0
Viðureignir Haukamanna í 2.umferð verða eftirfarandi:
Davíð Kjartansson – Sverrir Örn
Þorleifur Einarsson Þorvarður
Páll Sigurðsson – Ingi Tandri
Júlíus Guðmundsson Sveinn
Þorgeir Sigurðsson – Sverrir Þorgeirsson
Einar G. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir.
Allt athyglisverðar viðureignir og þá ekki síst feðgaslagur þeirra Þorgeirs og Sverris! Annars er undirritaður að vonast til að Haukamenn komi ekki til með að mætast mikið innbyrðis, enda miklu skemmtilegra að reita stigin af skákmönnum annarra taflfélaga! :o)