Þann 7. júní síðastliðinn hófst seinni hluti boðsmóts Hauka. Nú eru menn komnir í sína flokka og það mátti glögglega sjá að baráttan verður mikil í mótinu, ef marka má þessu fyrstu umferð. Þess má þó geta að þetta var í raun 2. umferð, þar sem úrslit úr innbyrðisviðureignum í riðlakeppninni gildir. Töfluröðina má sjá annars staðar á þessari síðu.
A-flokkur:
Mikil spenna var í A-flokknum þetta kvöld. Páll hafði hvítt gegn Sigurbirni, þar sem Sigurbjörn tefldi mjög vel, vann örugglega og tók forustuna í flokknum. Jóhann Helgi og Heimir tefldu mikla baráttuskák, þar sem Heimir virtist vera kominn með betra og Jóhann var í miklu tímahraki. Þá fann Jóhann hárrétta leið, fékk stórsókn sem endaði með því að Heimir lék af sér og Jóhann vann. Stórmeistarabaninn Þorvarður og Sigurður áttust við í skák sem margir höfðu spáð fyrirfram að myndi enda með jafntefli. Upp kom skemmtileg staða, sem virtist vera í nokkru jafnvægi, þó að hún væri þægilegri fyrir Sigurð. Skákin endaði með því að margir höfðu rétt fyrir sér eftir þráleik. Stefán Freyr hafði alltaf frumkvæðið gegn Sverri Erni í hörkuskák, þar sem Stefán hafði sigur í miklu tímahraki.
Úrslit:
Þorvarður-Sigurður 0,5-0,5
Páll-Sigurbjörn 0-1
Jóhann-Heimir 1-0
Stefán-Sverrir 1-0
Staðan:
Sigurbjörn 2
Jóhann 1,5
Stefán 1,5
Heimir 1
Þorvarður 1
Sigurður 1
Sverrir 0
Páll 0
B-flokkur:
Stefán Hafði hvítt gegn Árna, þar sem Árni náði snemma frumkvæðinu og vann örugglega. Jón og Auðbergur áttust við í skák, þar sem Auðbergur virtist vera kominn með ýfið betra, þegar hann lék af sér og Jón vann auðveldlega.Guðmundur og Daníel tefldu þunga skák sem fór út í hróksendatafl, þar sem Daníel hafði 2 frípeð, en var peði undir. Svo fór að þeir sömdu um jafntefli í stöðu þar sem fróðir menn segja að Daníel hafi átt góða vinningsmöguleika. Einar hafði hvítt gegn Inga. Einar fékk fljótlega vænlega stöðu, en yfirsást mikilvægur leikur, sem olli því að Ingi fékk frumkvæðið og hafði sigur +ur mjög flókinni stöðu.
Úrslit:
Stefán-Árni 0-1
Guðmundur-Daníel 0,5-0,5
Einar-Ingi 0-1
Jón-Auðbergur 1-0
Staðan:
Jón 2
Árni 2
Ingi 2
Guðmundur 1,5
Daníel 1,5
Stefán 0
Auðbergur 0
Einar 0
C-flokkur:
Skák Davíðs og Gísla var frestað, þar sem Davíð verður fjarverandi í sumar og á stíft prógramm fyrir höndum í haust. Sveinn, sem stýrði hvítu mönnunum gegn Haldóri, náði yfirburðarstöðu og vann. Baldur, sem kom inn í mótið fyrir Gísla Pétur, byrjaði vel með sigri á Ragnari, þar sem Ragnar virtist vera með betra, en afleikur kom honum í koll. Snorri og Sverrir tefldu skák sem virtist vera í fullkomnu jafnvægi, en Karpovfórn Snorra gekk ekki upp. Sverrir sýndi enn einu sinni kunnáttu sína í endatöflum og sigraði. Efnilegur strákur hér á ferð.
Úrslit:
Halldór-Sveinn 0-1
Snorri-Sverrir 0-1
Baldur-Ragnar 1-0
Davíð-Gísli frestað
Staðan:
Sveinn 2
Sverrir 2
Gísli 1+ frestuð
Baldur 1+fr.
Snorri 0+fr.
Davíð 0+fr.
Ragnar 0
Halldór 0