Undirritaður hefur nú ekki lagt það í vana sinn að vera gefa mikið út á eigið ágæti, en í þetta sinn er ekki annað hægt! Nú rétt í þessu var að ljúka Hraðskákmóti Íslands, þar sem tefldar voru 2 x 9 umferðir eftir monradkerfi. Eftir að hafa átt vægast sagt hörmulegt mót, mætti ég stórmeistaranum Helga Áss í síðustu umferð. Fyrr í mótinu hafði Stefán Freyr átt vænlegt tafl gegn Helga, sem náði jafntefli með þráskák. Fyrir síðustu umferðina hafði Helgi Áss vinningsforskot á Jón Viktor og dugði því 1,5 vinningur gegn undirrituðum til að tryggja sér titilinn. Helgi vann fyrri skákina nokkuð sannfærandi, en í þeirri síðari hafði undirritaður sigur eftir ROSALEGAR FLÆKJUR !!!
Hvítt: Helgi Áss
Svart: Varði.
1.c4-Rf6 2.Rc3-g6 3.e4-d6 4.d4-Bg7 5.f4
Þar sem ég var ekki að tefla við Heimi, var ég mjög feginn því að hvítur skyldi velja þetta afbrigði ! :o)
5.-0-0 6.Rf3-c5 7.dxc5
Ekki það algengasta en engu að síður til. Þarna var ég kominn út úr bókinni og tefli ekki nógu vel í næstu leikjum. Hvítur leikur hér nær alltaf 7.d5.
7.-dxc5?!
Betra er 7.-Da5=
8.Bd3-Rc6 9.e5-Rg4?! 10.h3-Rh6 11.Be3-b6 12.Be4-Bb7 13.g4-f5 14.Bd5-Kh8 15.g5?
Eftir 15.Rg5 er svartur í vandræðum!
15.-Rf7 16.h4-e6!
Þessi leikur snýr taflinu gjörsamlega við!
17.Bxe6-Rcxe5 18.Bd5-Rxc4!
Snotur leikur!
19.Bxb7-Rxe3 20.Dxd8-Haxd8 21.Kf2-Rg4+ 22.Kg3-Rd6 23.Bd5-Re3 24.Bc6-Hc8 25.Ba4-Bxc3 26.bxc3-Re4+
Ekki árennilegir Riddarar!
27.Kh2-Hcd8 28.Hae1-Rg4+ 29.Kg2-Hd3 30.h5-Kg7 31.hxg6-hxg6 32.Hh4-Hxc3 33.Heh1-Re3+ 34.Kh2-Rg4+ 35.Kg2
Þegar hér var komið við sögu voru keppendur orðnir ansi tæpir á tíma og var tími Helga Áss öllu lakari.
35.-Kf7
Að sjálfsögðu hafnar svartur þráleik í þessari stöðu og gildir þar einu hver andstæðingurinn er!
36.Hh7+-Ke6 37.Hxa7?
Helgi er alveg á lakkinu og leikur hér dæmigerðum tímahraksleik. Svartur nær nú að sauma mátnet.
37.-Re3+ 38.Kh2-Hh8+ 39.Kg1-Hc1+ 40.Bd1-Hxd1+ 41.Re1-Hxe1 #
Jón Viktor sigraði Eirík Björnsson 2-0 og því þurftu þeir félagar því að tefla úrslitaskák um titilinn. Helgi fékk hvítt og náði að knýja fram sigur í hörkuskák.
Haukakveðja, Varði.