4. umferð Meistaramót Hellis

Fjórða umferð Meistaramóts Hellis var tefld í gær mánudag í húsakynnum Hellis í mjóddinni. Jafntefli varð raunin á efstu tveim borðunum og eru nú sjö sterkir skákmenn jafnir í fyrsta sæti.

En svo við snúum okkur að haukamönnunum í mótinu. Sannkallaður „Derby“-slagur var á þriðja borði þar sem FH-ingarnir Sveinn Arnarsson(1490) hafði hvítt gegn Stefáni Frey Guðmundssyni(1961). Sveinn undirbjó sig með eindæmum vel fyrir skákina, mætti ekki í skólann og sat lengi með Heimi Ásgeirssyni þar sem skoðað var nýtt afbrigði af Benkö-afbrigðinu. Stefán Freyr tefldi reyndar ekki sitt eftirlætis afbrigði gegn, heldur lék 1. ..g6 og beitti fyrir sér kóngs-indverskri vörn. Stefán telfdi vel og vann Svein í 36 leikjum.

Það má því með sanni segja að Stefán Freyr hafi guggnað og ekki þorað út í þaulskoðað afbrigði sem hefði komið betur út fyrir hvítt.

Ingi Tandri Traustason(1495) hafði svart gegn reynsluboltanum Sigurði Ingasyni(1780). Ingi Tandri komst í mjög góða stöðu eftir að hafa teflt sitt beittasta vopn, grjótgarðinn. Ingi átti sannarlega góða möguleika á sigri en eftir uppskipti í tímahraki og erfitt endatafl náði Sigurður að knýja fram sigur.´

Stefán Freyr er eini Haukamaðurinn í mótinu sem á eftir að blanda sér virkilega í toppbaráttuna. Óskum við honum góðs gengis í þessum þremur skákum sem eftir eru.

Sveinn Arnarsson