Meistaramót Hellis

Nú er lokið þremur umferðum af sjö í Meistaramóti Hellis. Haukamennirnir þrír, þeir Stefán Freyr, Ingi Tandri og Sveinn, eru allir með tvo vinninga.

Stefán Freyr lagði Jóhann Helga(TG) í skemmtilegum skandinava þar sem Jóhann Helgi lenti í erfiðu tímahraki. Ingi Tandri vann Margréti Jónu Gestsdóttur nær örugglega og Sveinn knésetti Halldór kára Sigurðsson í fimmtán leikjum. Sú skák er merkileg fyrir það að þetta er í fyrsta sinn sem Sveinn beitir Sikileyjar vörn í kappskák.

Eins og staðan er í mótinu núna eru Sigurður Daði og Jón Árni Halldórsson efstir og jafnir með 2.5 vinninga. Þess ber einnig að geta að Björn Þorfinnson og Davíð Kjartansson eigast við í dag. Þeir eru með tvo vinninga.

Útlit er fyrir frábært mót hjá Hafnfirðingunum og er stefnan sett á 71% vinningshlutfall, sem samsvarar fimm vinningum.

Sveinn Arnarsson