Skákdeild Hauka-Hrókurinn í kvöld.

Ég læt hér fylgja með umfjöllun um viðureignina sem er á skak.is

Úrslitaviðureign Hauka og Hróksins

Fjórðudeildarmeistarar Skákdeildar Hauka og Íslandsmeistarar Hróksins mætast í úrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga þriðjudaginn 7. september. Viðureignin fer fram á heimavelli Hauka á Ásvöllum og hefst kl. 20:00. Það er Taflfélagið Hellir sem stendur fyrir mótshaldinu og er þetta í níunda sinn sem keppnin fer fram. Fyrirfram verða Hróksmenn að teljast margfalt sigurstranglegri en félagið lagði Helli og TR á leið sinni í úrslit.

Haukar hafa hins vegar farið heldari léttari leið, lögðu Selfyssinga, Reyknesinga og Vestmannaeyinga á leið sinni. Engu að síður glæsilegur árangur hjá Haukum. Það má því alls ekki vanmeta Haukanna enda með sterka hraðskákmenn í sínum röðum. Íslandsmeistarnir verða þó að teljast margfalt sigurstranglegri, ekki síst ef þeir stilla upp 1-2 erlendum stórmeisturum eins og þeir gerðu gegn TR og Helli.

Keppnin fer þannig fram að sex skákmenn tefla í einu hvoru liði og mæta öllum í hinu félaginu. Tefld er tvöföld umferð, alls 72 skákir.

Líkleg lið (aðeins íslenkir):

Hrókurinn:

Jóhann Hjartarson 2640
Stefán Kristjánsson 2403
Elvar Guðmundsson 2325
Róbert Harðarson 2285
Páll Þórarinsson 2278
Ingvar Þór Jóhannesson 2255
Tómas Björnsson 2238
Lárus Knútsson 2112

Haukar:

Ágúst Sindri Karlsson 2308
Ásgeir P. Ásbjörnsson 2295
Heimir Ásgeirsson 2107
Þorvarður F. Ólafsson 2070
Stefán Freyr Guðmudnsson 1950
Sverrir Örn Björnsson 1920
Sigurður Sverrisson 1840
Jón Magnússon

Það er ljóst að nýir sigurvegarar verða krýndir því hvorugt félagið hefur sigrað í keppninni. Þetta er þess fyrir utan í fyrsta sinn sem Haukar taka þátt. Hellir hefur sigrað 5 sinnum og þar af þrjú síðustu ár, TR tvisvar og Skákfélag Hafnarfjarðar vann eitt sinn afar óvænt. Gangur keppninar hefur verið sem hér segir:

4. umferð (úrslit):
Skákdeild Hauka – Skákfélagið Hrókurinn

3. umferð (undanúrslit):
Taflfélag Vestmannaeyja – Skákdeild Hauka 28½-43½
Taflfélag Reykjavíkur – Skákfélagið Hrókurinn 32½-39½

2. umferð:
Taflfélag Vestmannaeyja – Taflfélag Kópavogs 72*-0*
Taflfélag Reykjavíkur – Skákfélag Akureyrar 50½-21½
Skákfélag Reykjanesbæjar – Skákdeild Hauka 19-53
Taflfélagið Hellir – Skákfélagið Hrókurinn 30½-41½

Úrslit 1. umferðar:
Skákdeild Hauka – Skákféla Selfoss og nágrennis 54-18
Skákfélag Reykjanesbæjar – Taflfélag Garðabæjar 37½-34½
Skákdeild KR – Taflfélag Kópavogs 31½-40½
Taflfélag Akraness – Taflfélag Vestmannaeyja 26½-45½

Auglýsingar Um Strik.is Ritstjórn Vefstjóri Gleymt lykilorð
© Strik.is og samstarfsaðilar