Breytingar á Íslandsmóti.
Eins og fram hefur komið, hefur Fjölnir dregið lið sitt úr keppni í mfl.ka. og eru nú aðeins 14 lið eftir í deildinni og verður því að breyta Íslandsmótinu enn og aftur. Ekki er við starfsmenn HSÍ að sakast í þeim efnum, þeim er skylt að vinna eftir lögum og reglum sambandsins og eru ekki öfundsverðir að setja saman nýtt leikjaplan, rétt viku fyrir mót, væntanlega með endalaust nöldur og tuð frá okkur handboltafólki. Okkur er nær að skammast í okkur sjálfum, það eru við, félögin (leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, félagsmenn) sem ákveðum hvaða lög og reglur eru í gildi. Næsta ársþing HSÍ er síðan vettvangur til breytinga á leikjafyrirkomulagi, bæði hjá mfl.ka og kvenna, ef menn vilja.
Sendum baráttukveðjur á skrifstofu HSÍ og vonum að þjóðaríþrótt okkar Íslendinga, handboltinn, eigi bjart framundan og allir leggist á eitt og geri veturinn skemmtilegan.
Leikjaplan mfl. karla er hér.
Leikjaplan mfl. kvenna er hér.
