Evrópukeppnin 2.umferð
Í næstu umferð Evrópukeppninnar leika Haukar við pólska liðið KS Strzelec-Lider Market. Fyrri leikurinn verður í Póllandi 6. eða 7. okt.
og seinni leikurinn heima á Ásvöllum 13. eða 14. okt. Í fyrstu umferð lék pólska liðið við Lusis Akademikas Kaunas frá Litháen. Pólska liðið vann fyrri leikinn 35-26, en tapaði þeim síðari í
Litháen 24-30. Hér má lesa um væntanlega mótherja okkar frá Póllandi www.iskra-lm.com.pl.
