Reykjavík Open lokið
Reykjavíkur-Open lauk í kvöld. 11 lið tóku þátt í mfl.kvenna og 13 lið í mfl.ka. Eðlilega var nokkur haustbragur á leik liðanna en oft sáust glæsileg tilþrif, bæði hjá áhorfendum, dómurum og ekki síst leikmönnum. Við Haukar getum hlakkað til vetrarins, okkar lið stóðu sig mjög vel og spiluðu bæði til úrslita. Stelpurnar unnu alla sína leiki í riðlinum og léku til úrslita við Víking. Leikurinn var jafn allan tímann, þó voru Haukastelpur fyrri að skora og voru þetta eitt, tvö mörk yfir, þar til í lokin að Víkingsdömur jöfnuðu og unnu síðan með einu. Haukastelpur fengu silfrið, til hamingju með það stelpur. Strákarnir unnu alla sína leiki í riðlinum og krossspili og léku til úrslita við piltana úr fimleikafélaginu. Leikurinn var jafn til að byrja með en Maggi skellti í lás og Haukarnir sigu smátt og smátt framúr og voru þeir ekki lengi að ná yfirhöndinni því þegar um tíu mínútur voru liðnar var munurinn orðinn fjögur mörk. Í hálfleik var munurinn svo orðinn sex mörk og endaði leikurinn með tíu marka sigri Hauka eftir að þeir höfðu náð mest ellefu marka mun. Til hamingju strákar. Fínt veganesti til Hollands.
